matvælastefna til ársins 2040.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum aftur fyrir andsvarið. Við skulum ekki gleyma því að við getum breytt stefnu. Það eru ekki nema um tvö ár síðan við samþykktum síðustu stefnu. Sannarlega er þó ekki gott að vera að hræra mikið í þeim. En ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er eitthvað sem við þurfum að gera. Við erum auðvitað ekki með einhverja risavaxna matvælaframleiðslu eða matvöruverslanir, við erum auðvitað á örmarkaði þar sem allur svona kostnaður vegur gríðarlega þungt. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að stjórnvöld gangi í broddi fylkingar með það að láta rannsaka þetta til þess að við getum búið til það sem matvælaframleiðslan telur vera eðlilegt íslenskt kolefnisspor þannig að við sitjum við sama borð. Ég ætla líka rétt að vona að það gerist ekki á 20 árum. Ég ætla að vona að það gerist bara á næstu árum og ég hef trú á því að það gerist ekki á mjög mörgum árum en allt tekur þetta samt tíma. Þá er auðvitað aðgerðaáætlun sú sem er að virka og hún getur alltaf gengið áfram með þetta atriði sem hér er fellt út. En þetta getur að sjálfsögðu verið og er undirliggjandi í þeim aðgerðum sem matvælaráðherra er nú þegar að vinna að. Ég óttast það því ekki að neytendur verði ekki vel upplýstir og ég mun líka fylgja því eftir á meðan ég er á þingi því að ég tel mjög mikilvægt að við sem neytendur eigum rétt á að vita um uppruna og við eigum rétt á að fá að vita um innihald og við höfum rétt á því að vita um kolefnisspor. Þetta þrennt. Við þingmaðurinn erum sammála um þetta. En ég held að við þurfum lengri tíma til að sjá til þess að þessi merking sé raunverulega sanngjörn. Á meðan við erum ekki búin að finna út úr því þá ákváðum við að taka þetta út. En eins og ég segi, ráðherra hefur alltaf tök á því að ganga lengra.