matvælastefna til ársins 2040.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um matvælastefnu til ársins 2040. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir góða framsögu og sömuleiðis fyrir gott samstarf í nefndinni og það hefur verið ánægjulegt að fara í gegnum þessa vinnu sem hefur átt sér stað. Mér finnst mikilvægt að það komi fram í umræðunni hér í þessum sal að á 149. löggjafarþingi samþykktum við aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna og þar voru einir 17 liðir tilteknir í aðgerðaáætlun og 12. liður í þeirri aðgerðaáætlun var um mótun matvælastefnu. Það er því ánægjulegt að benda á það að þeirri vinnu sem unnin hefur verið hér á þingum sem nú eru liðin er haldið áfram og það er töluvert mikið verkefni eftir enn hvað varðar vinnu við alla þá liði sem samþykktir voru þá. Það er tæpt á sumum þeirra hér í matvælastefnunni. Þar komum við inn á það sem snýr að matvælaöryggi. Í umræðunni hefur mikið verið fjallað um sýklalyfjaónæmi og ekki síst notkun á sýklalyfjum í matvælaframleiðslu, sérstaklega framleiðslu á landbúnaðarafurðum. Þeir sem þekkja til vita að það regluverk sem er um matvælaframleiðslu hér á landi er mun harðara og strangara heldur en þekkist erlendis, handan Atlantsála. Í umræðunni áðan áttu hv. þingmenn Gísli Rafn Ólafsson og og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir orðastað um það hvernig við mælum hlutina þegar talað er um kolefnisfótspor. Þá er mjög mikilvægt í þessu samhengi, þegar við gerum kröfur til þeirrar framleiðslu sem við stöndum að, að leikurinn sé jafn og horft til þess í verðlagningu og sömuleiðis í upplýsingum til neytenda. Það er tekið ágætlega á því í matvælastefnunni sem snýr að merkingu matvæla og upplýsingagjöf sömuleiðis til neytenda hér í matvælastefnu því ef ekki verður gerð bragarbót á stöðunni sem nú er í dag þá heldur þetta áfram svona svipað eins og er í villta vestrinu. Grænmeti getur t.d. verið íslenskt ef það er þvegið upp úr íslensku vatni. Það er nú verulega merkilegt þegar svo er komið. Það sama á við um innflutning á kjöti. Því miður eru menn að leyfa sér að blanda þessu saman við innlent kjöt, íslenskt kjöt. Það eru reglur þess efnis að menn eiga að tiltaka það og það eru ákveðnar reglur líka um það hvernig merkja á matvæli. En því miður eru menn að leika sér svolítið að eldinum og fara kannski ekki alveg að þeim leikreglum sem settar eru. Þar þurfum við að taka okkur verulega á og það snýr sömuleiðis að eftirliti með því hvernig komið er fyrir þeim geira. Það eru til margar sögur sem hægt er að fara með þess efnis hvernig farið er með neytendur þessa lands. Það er hreint með ólíkindum að fylgjast með því hvernig sumir innflytjendur matvæla leyfa sér að reyna að, eins og maður segir — blekkja er kannski fullgróft orð en það er mjög nærri því. Það er feiknarlegt verkefni fram undan hvað það varðar.
Þegar talað er um sjálfbærni matvælaframleiðslu þá geri ég mér grein fyrir því að sjálfbærni er mjög stórt orð og stundum finnst manni það vera ofnotað. En það felst líka í því ákveðin áskorun fyrir okkur þegar við tölum um sjálfbærni og að við ætlum að uppfylla þau markmið sem við setjum okkur. Það að stefna að sjálfbærri matvælaframleiðslu er mjög metnaðarfullt verkefni og ég hef grun um það að sumir þingmenn hafi sérstakan áhuga á því að ræða orðið sjálfbærni hér í þessum ræðustól, miðað við það sem á undan er gengið fyrr í kvöld. En það er nú samt þannig að við erum að nýta náttúruauðlindir til þess að framleiða mat. Ef við göngum sífellt á þær auðlindir sem gefa okkur matinn þá fer illa fyrir okkur, þá endar það þannig að við getum ekki lengur framleitt það sem við ætlum að gera. Við búum á landi sem er ríkt af auðlindum en landið er sömuleiðis verulega viðkvæmt. Okkur ber skylda til þess að fara vel með auðlindina og vanda hvernig við nýtum hana. Ég tel að núna á síðustu áratugum höfum við stigið stórt skref fram á við í þeim efnum og við getum farið að tala um það að matvælaframleiðsla okkar sé sjálfbær eða því sem næst. Vissulega erum við ekki komin í mark með allt.
Og talandi um kolefnisfótspor vörunnar þá er það nú svo að við erum háð innflutningi á kornvöru í mjög stórum stíl. Það hefur áhrif á mælingu ef við ætlum að fara að mæla kolefnisfótspor t.d. svínakjöts eða kjúklingakjöts, sömuleiðis við mjólkurframleiðslu. En það horfir til betri vegar hvað það varðar með metnaðarfullri sýn matvælaráðherra og ríkisstjórnarinnar um að efla innlenda kornframleiðslu. Þetta tengist síðan allt fæðuöryggi, að treysta grunn þjóðarinnar til að vera sjálfbær í því að afla sér fæðu. Vissulega getum við horft til þess að við erum gríðarlega öflug í sjávarfangi og fiskeldi. En í framleiðslu landbúnaðarafurða höfum við verið verulega háð innflutningi á mörgum sviðum. Við höfum svo sem tekið umræðu hér í þessum sal um fæðuöryggi. Í dag erum við að nota 180.000 tonn af korni til framleiðslu á landbúnaðarvörum, hvort sem er kjöti eða mjólk. Við erum að framleiða 7.000 tonn, eitthvað svoleiðis, þannig að við eigum mikið verk fyrir höndum. En þetta talar allt saman hér í þessari stefnu og vissulega er ég, virðulegi forseti, kominn aðeins yfir í landbúnaðarstefnuna líka, en þetta er allt samhangandi, með því að fara í þessa vegferð, að taka stefnuna.
Við höfum tekið hér liðinn um fæðuöryggi í matvælastefnunni og ég er búinn að fjalla hérna ágætlega um matvælaöryggið, sömuleiðis sjálfbærnina. Þá er einn liður eftir, liður 2, sem er kallaður samfélag. Þar eigum við sömuleiðis mikil tækifæri til að skapa ákveðin starfsskilyrði fyrir þá innlendu matvælaframleiðslu sem hér er. Nú vita kannski sumir hv. þingmenn hvert sá sem hér stendur er að fara en það snýr að því að við þurfum að horfa til þess að jafna leikinn, að innlendir matvælaframleiðendur séu á jöfnum samkeppnisgrunni við þá sem eru erlendis. Eins og hefur nú komið hér margoft fram í þessum ræðustól þá erum við stundum frekar smá í sniðum þegar kemur að höfðatölu og þeirri landbúnaðarframleiðslu sem við stundum. Til þess að jafna þann leik þá þurfum við að stíga ákveðin skref í að endurskoða starfsumhverfi greinanna, hvort sem það er í mjólk eða kjöti, sem snýr þá að samkeppnishlutanum og að leyfa mönnum að vinna saman á þeim grunni.
Ef við tölum um þarfir neytenda þá er þetta allt samhangandi, snýr bæði að matvælaöryggi og fæðuöryggi, þ.e. hvaðan maturinn kemur. Er neytandinn upplýstur? Á þessu er tekið í þessari stefnu undir lið 5, um þarfir neytenda. Það er til lítils að framleiða góða vöru ef neytandinn hefur ekki nokkurn einasta áhuga á að nýta sér hana, vill kannski frekar leita í ódýrari vöru sem er framleidd við mun verri aðstæður, full af sýklalyfjum. En það stendur líka upp á okkur löggjafann að framfylgja því að menn fari eftir reglum og að þegar neytandinn kemur í búðina séu menn með þær upplýsingar fyrir framan sig, hvort sem menn nýta sér tæknina í gegnum strikamerki eða svoleiðis; að hægt sé að leita uppruna vörunnar og við hvaða aðstæður hún er framleidd og sömuleiðis hvert kolefnisfótspor vörunnar er. Það voru mjög fróðlegar umræður hér áðan á milli hv. þingmanna Gísla Rafns Ólafssonar og Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur um þetta og verður gaman að fylgjast með því í framtíðinni hvernig við leysum það. Við þekkjum það vel í þeirri umræðu sem hefur átt sér stað í gegnum tíðina um losun frá landi að hugsanlega erum við að mæla á einhvern annan hátt en menn eru að mæla annars staðar í heiminum. Ég þekki þetta ágætlega úr sauðfénu þar sem sauðfé á Nýja-Sjálandi er með 60% minna kolefnisfótspor heldur en íslenska sauðkindin. En nú er svo sem enginn greinarmunur á sauðkind á Nýja-Sjálandi og sauðkind á Íslandi, þetta eru hvort tveggja jórturdýr og skila frá sér ákveðnu magni gróðurhúsalofttegunda þegar fæðan fer í gegnum þau. Það er bara mismunandi hvernig þú mælir og auðvitað eru framleiðsluaðstæður með töluvert öðrum hætti hér en hjá frændum okkar hinum megin á hnettinum.
Í 6. lið stefnunnar er komið inn á rannsóknir, nýsköpun og menntun. Þar höfum við í sumum greinum matvælaframleiðslunnar því sem næst skilað — ja, kannski ekki auðu en við höfum ekki staðið okkur nógu vel. Við þekkjum mjög vel það sem snýr að mjólkurframleiðslu, þar hefur verið feikileg nýsköpun og miklar rannsóknir þar. Það sama á við um sjávarútveg og fiskeldi en við höfum setið frekar aftarlega á merinni þegar kemur að rannsóknum og nýsköpun í framleiðslu á kjöti. Ég ætla að leyfa mér að kenna því um að fyrirtækjum sem vinna í þeim geira skortir ákveðið svigrúm í sínu starfsumhverfi til að vinna saman og styrkja stoðir til þess að geta stundað ákveðnar rannsóknir og nýsköpun en ekki vera háð því að þurfa að leita styrkja stanslaust. En við þekkjum þetta ágætlega úr mjólkuriðnaðinum, sérstaklega eins og varðandi Mjólkursamsöluna, þar er svo mikill drifkraftur sem snýr bæði að rannsóknum og nýsköpun og þar er virkilega verið að gera vel og nýta vöruna til hins ýtrasta. Ég er sannfærður um það og ég bara veit það líka að við getum gert hið sama þegar kemur að kjötinu.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að hafa leiðarvísi í svo mikilvægu máli og því ber að fagna að þessi matvælastefna sé nú komin hingað inn og nú erum við í síðari umræðu um þessa stefnu. Ég ætla að leyfa mér það að hrósa matvælaráðherra fyrir að koma fram með þessa stefnu. Það er alltaf þannig í öllu að við getum endurskoðað hluti og við getum lagað þá og bætt við þá en einhvers staðar þurfa menn að byrja. Og þetta er mjög góð byrjun sem byggir líka á ákveðnum grunni, eins og ég kom inn á áðan, en á 149. löggjafarþingi tókum við hér fyrir aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna í 17 liðum og 12. liður í þeirri stefnu sem þá var samþykkt var um mótun matvælastefnu. Nú er hún komin hér til okkar, ákveðinn leiðarvísir til að takast á við áskoranir til framtíðar. Ég held að það sé óhætt fyrir okkur að vera full bjartsýni fyrir hönd matvælaframleiðslu í landinu því tækifærin eru til staðar. Vegvísirinn er hérna kominn í stefnunni og nú er bara að fylgja henni og fylgja henni nokkuð fast eftir því það er hverri þjóð mikilvægt að geta státað sig af því og geta sagt: Við erum öflug þjóð, við getum talað um fæðuöryggi, matvælaöryggi og við getum treyst þeirri vöru sem við erum að framleiða, neytandinn getur treyst henni. Til þess er alltaf gott að vera með leiðarvísi sem matvælastefnan er. Hún er til ársins 2040 og ég er alveg sannfærður um að hún á eftir að taka breytingum, hún á eftir að þroskast á sinni vegferð til ársins 2040.