Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:35]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson kom inn á mjög viðkvæma umræðu hér, a.m.k. var það að heyra hér fyrr í umræðunni um þetta mál. Hann kom bæði inn á sjávarútveg og umhverfismálin og ég ætla að leyfa mér að halda aðeins áfram með þá umræðu en ekki mikið. Hv. þingmaður talar um öflugan sjávarútveg en þá vil ég vekja athygli hans á því að staðreyndin er einfaldlega sú, ef maður tekur mið af botnfiskafla þjóðarinnar núna, þá erum við hálfdrættingar á við það sem þjóðin aflaði af fiskimiðunum fyrir örfáum áratugum síðan þannig að við erum ekki að gera neitt óskaplega vel hvað það varðar. Ég held að við getum verið sammála um það ef við förum yfir hagtölur. Hann lýsti yfir ánægju sinni með þessa matvælastefnu og þakkaði hæstv. matvælaráðherra. En það komu inn umsagnir, m.a. frá mínu frábæra sveitarfélagi, Sveitarfélaginu Skagafirði, sem fannst þessi stefna ekkert sérstök. Og orðrétt segir um þessa sex liði, með leyfi herra forseta: „Í flestum þeirra eru samt útþynntar eða loðnar lýsingar á því sem ætlað er að gera.“ Síðan koma líka alvarlegar athugasemdir frá Bændasamtökum Íslands. Þess vegna tel ég rétt að ræða þessar alvarlegu athugasemdir. Ég sé það á breytingartillögum að það hefur að einhverju leyti verið komið á móts við þessi sjónarmið en ég tel að það sé ekki nægjanlegt, a.m.k. ekki ef farið yfir þær alvarlegu athugasemdir sem voru gerðar af Bændasamtökum Íslands við upprunamerkingar matvæla og sömuleiðis athugasemdir Sveitarfélagsins Skagafjarðar.