Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:37]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég fer ekkert ofan af því að sjávarútvegur á Íslandi er öflugur. Við getum væntanlega deilt um það hvernig komið er í dag, hvort það sé hægt að veiða helmingi meira eða hvernig það er. En þá er líka mikilvægt að horfa til arðsemi og nýtingar afurða og þegar við veiddum hvað mest hér á árunum 1980–1990, ætli við höfum ekki verið að nýta þá sirka 60% af fiskinum og afurðin var kannski alla vega líka sem fór á markað. Kröfurnar eru aðrar í dag. En hv. þingmaður spurði út í alvarlegar athugasemdir og væri fróðlegt að vita í hvaða athugasemdir hann er að vísa. (SigurjÞ: Upprunamerkingar.)Ég held að ég hafi farið nokkuð ágætlega yfir mikilvægi upprunamerkinga í minni ræðu hér áðan og það er alveg á hreinu að þar getum við gert mun betur og við höfum því miður hingað til verið með buxurnar töluvert á hælunum þegar kemur að því og eftirfylgni með því og það kom bara nokkuð skýrt fram, virðulegi forseti, í minni ræðu hér áðan. Það er komið ágætlega inn á þær merkingar í stefnunni og ég held að það sé ekki við stefnuna að sakast. Það er frekar við framfylgd þess sem við höfum áður samþykkt um merkingar á matvælum. Þannig að ég held að við ættum frekar að (Forseti hringir.) sameinast um það, hv. þingmaður, að hvetja til góðra verka og menn fylgi þeim vegvísi er snýr að upprunamerkingu matvæla.