Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:40]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Jú, vissulega er alltaf hægt að framfylgja hlutunum betur en ég veit ekki betur en að hæstv. matvælaráðherra sé að sinna þessum verkum. Ég hef aldrei gert athugasemdir við það verklag þó svo að ég heyri greinilega gagnrýni innan úr stjórnarherbúðunum hvað það varðar. En ég vonast til þess að hv. þingmaður fari örlítið yfir útgerðarsögu Íslendinga, við vorum ekki bara veiða meira í kringum 1980 heldur nánast alla 20. öldina. Það sem við erum að draga núna upp úr hafinu er eitthvað sem þarf að fara yfir með gagnrýni. Ég treysti og trúi því að Framsóknarflokkurinn veiti okkur í Flokki fólksins liðsinni í því. Ég tel einmitt að það felist tækifæri í því en því miður hefur sú umræða verið blásin of oft út af borðinu. Það eitt að hæstv. matvælaráðherra treysti sér ekki til að gefa frjálsar handfæraveiðar fyrir örfáa, nokkur hundruð koppa, 48 daga á ári, sýnir að þetta er ekki öflugt kerfi sem við erum með. Það er ekki hægt að hafa einu sinni örlítið frelsi fyrir einstaklinginn. Maður er hissa á því að t.d. að Sjálfstæðisflokkurinn komi ekki inn í þá umræðu og við séum ekki að ræða það hér í tengslum við matvælastefnu. En ég tók eftir því í andsvörum við hv. framsögumann að það er mjög viðkvæmt að ræða þessi mál en ég fagna því að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson taki þátt í þeirri umræðu því þarna eru virkilega tækifæri, með því að leyfa aukið frelsi til veiða, það er alveg ljóst og flest vistfræðileg rök hníga til þess.