Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:42]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kannast nú ekki við sérstaka viðkvæmni af minni hálfu er við ræðum um nýtingu auðlinda hvort sem er til lands eða sjávar. En það má vel vera að okkur hv. þingmanni greini á um það hvernig við eigum að stýra þessu og hvernig fiskveiðistjórnarkerfið eigi að fara fram og ég held að það sé alveg óhætt að segja það að við höfum komist að því, held ég nokkuð vel, ég og hv. þingmaður, sitjandi saman í atvinnuveganefnd, að við deilum kannski ekki alveg skoðunum um það hvernig grunnstefið á að vera. Og hvort sem það snýr að því að smábátasjómenn fái 48 daga og 700 kíló á dag eða 670 — ég held að það sé nú að verða ansi mikil hártogun á því sem snýr að því hvort umgengni við auðlindina sé takmörkuð eða ekki. En vissulega verðum við líka að taka með í umræðuna þegar við förum að fjalla um auðlindir, hvort sem er til sjávar eða sveita, að verulegar breytingar hafa átt sér stað. Það eru miklar breytingar sem snúa t.d. að því að nú veiðum við minna af hval en við gerðum. Það má vel vera að breytt mynstur sjávarins geti líka orsakast af því að hér hafa breyst aðstæður, t.d. sem snýr að hitastigi og sömuleiðis getur það haft áhrif að hvalveiðar eru eitthvað minna stundaðar. En nú veit ég að hv. þingmaður er líffræðingur og þekkir þetta vel þannig að ég bíð nú bara nokkuð spenntur eftir því, virðulegi forseti, að hann helli hér úr sínum fróðleiksbrunni og upplýsi okkur hv. þingmenn um mikilvægi sjálfbærni og það sem snýr að sjálfbærum veiðum, hvort sem er til sjávar eða sveita.