matvælastefna til ársins 2040.
Herra forseti. Það er búið að snerta á ýmsum hlutum í þessari annars ágætu umræðu um matvælastefnu til ársins 2040. Ég nefndi hér fyrr í kvöld að þegar kemur að því að búa til stefnur og aðgerðaáætlanir þá væri margt sem þyrfti að laga. Ég ætla ekki að endurtaka alla þá romsu en bendi fólki á að skoða það sem var rætt undir aðgerðaáætlun um geðheilbrigðismál hvað það varðar. En ég held að það sé öruggt að halda því fram að ef þessi skjöl væru tekin sem verkefni í stefnumótunarkennslu eða verkefnastjórnun þá fengju þau nú ekki nægilega háa einkunn, margt mætti þar betur fara. Þá er ég bara að tala um innihaldið, formið á innihaldinu og annað, ekki einstaka liði í þessari stefnu.
Mig langar líka að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir umræðuna um íslenska lambið og nýsjálenska lambið og kolefnisspor þeirra. En mig langaði að leiðrétta hv. þingmann sem sagði að það væri enginn munur á þessum lömbum. Íslenska lambið er mun betri á bragðið, hef smakkað þau bæði.
En förum í þingsályktunartillöguna sjálfa. Mér varð hér fyrr í umræðunni tíðrætt um kolefnisspor og merkingar um það. Ég held að það sé mjög mikilvægt að átta sig á því að það að hafa upplýsingar um kolefnisspor hefur tvenns konar áhrif. Í fyrsta lagi þau að neytendur geta tekið upplýstar ákvarðanir sem tengir einmitt við 5. lið stefnunnar, um þarfir neytenda. En það er líka annar önnur ástæða fyrir þessu og hún er sú að þetta virkar sem hvati fyrir bændur til þess að framleiða vöruna með sem lægstu kolefnisspori. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi hér áðan t.d. að meiri hluti korns væri innfluttur en það stæði til að fara rækta eins mikið og hægt væri af því á Íslandi. Eitt af því sem á að vera hvati til þess að við séum að gera það og við séum að nota eitthvað sem er ekki flutt um hálfan hnöttinn til okkar er einmitt að það lækkar kolefnissporið. Það er alltaf mikilvægt að átta sig á því að við erum að láta þetta virka í tvær áttir.
Þegar kemur að merkingum um kolefnisspor þá spyr ég mig um það, ég veit það ekki, ég hef ekki kannað það, en það kæmi mér ekkert á óvart að Evrópusambandið væri að innleiða einhverjar reglugerðir um það hvernig eigi að reikna það út og sýna kolefnisspor á matvælum. Ef þeir eru ekki byrjaðir að gera það þá er kjörið tækifæri fyrir okkur til að kenna þeim hvernig er hægt að gera það á góðan máta. En við ættum svo sannarlega ekki að bíða til 2040. Eins og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir benti á þá er nú hægt að endurskoða þessa matvælastefnu og ég held að það væri góður bragur á því að annaðhvort atvinnuveganefnd eða ráðuneytið setti af stað öfluga og góða vinnu við að koma upplýsingum um kolefnisspor sem fyrst inn, ekki bara sem fallega setningu í einhverri stefnu, heldur inn í reglugerð og lög og allt sem þarf til að þetta fari í gang. Það mun skapa góðan hvata bæði gagnvart neytendum og gagnvart framleiðendum.
Hv. þingmönnum hefur líka orðið tíðrætt hér um upprunamerkingar. Aftur spyr ég hvort ekki séu til einhverjar reglugerðir sem við getum byggt það á. Ég er hjartanlega sammála öðrum nefndarmönnum í því að það á ekki að vera hægt að fela það hvaðan varan kemur. Bara með því að bæta kryddi á kjötbita þá er hann ekki allt í einu orðinn íslenskt kjöt þó svo að það megi þá kannski skilgreina hann sem íslenska framleiðslu. Það er tvennt ólíkt. Ef ekki er verið að framfylgja reglum í þessu þá þurfum við að setja meira fjármagn í eftirlit og herða viðurlög við slíkum brotum og það á ekki að vera nóg að segja bara hvert innihaldið sé heldur væri líka lag á því að hafa upplýsingar um það hvernig framleiðslu er háttað. Eru t.d. einhver lyf notuð? Er framleiðslan lífræn? Öllum þessum hlutum getum við bætt við. Þetta þarf ekki allt saman að enda á límmiðanum þó svo að ákveðnar upplýsingar þurfi að vera á pakkningunni. Það er líka hægt að nýta tæknina til að hafa dýpri upplýsingar fyrir þá sem vilja vera vel upplýstir neytendur.
Ég nefndi lífræna framleiðslu. Það hefur verið aukin áhersla, sér í lagi í landbúnaðinum, á að auka lífræna framleiðslu. Það var einmitt mjög gaman að tala við bónda úr Kjósinni þegar bændaþing var hér fyrir ári síðan og heyra hvernig þetta hafði breyst á þeim 20 árum sem bóndinn hafði verið í lífrænni framleiðslu, hvernig fyrst var hlegið að honum en núna væri fólk farið að spyrja hvernig ætti að gera þetta. Ég sakna þess svolítið í stefnunni að það sé ekki lögð meiri áhersla á lífræna framleiðslu á matvöru.
Að lokum langaði mig að fjalla örstutt um nýsköpun. Það er ánægjulegt að sjá í þessari stefnu að þar er lögð áhersla á rannsóknir, nýsköpun og menntun. En það er ekki nóg að vera með einhver háfleyg orð um það sem við viljum geta gert vegna þess að það þarf að fylgja fjármagn með til að styðja við þessa nýsköpun. Öll nýsköpun krefst fjármagns til þess að prófa sig áfram, rekast á veggi og finna lausnir. Nýsköpun þegar kemur að matvælum getur falið í sér marga hluti, t.d. að nýta einhverja afurð sem við erum ekki að nýta í dag. Það þekkja eflaust flestir söguna um skötuselinn, hvernig honum var hent frá borði í aldaraðir af því að hann var ljótur. Svo uppgötvuðu menn að hann var nú ansi bragðgóður en það þurfti útlendinga til að skýra það út fyrir okkur Íslendingunum. Það eru eflaust margir hlutir sem við gætum lært að nýta betur og nota betur sem við erum ekki að nota í dag og erum kannski að henda eða nota á mjög einfaldan hátt. En svo er líka það að nýta betur það sem við erum þegar búa til, rækta eða veiða. Einhver besta sagan um nýsköpun sem tengist matvælum er fyrirtækið Kerecis sem framleiðir plástra sem aðstoða sár við að gróa og fær meiri verðmæti út úr því sem áður var hent af fiskinum heldur en fæst fyrir það að taka fiskinn og selja hann. Þannig að tækifærin eru fjölmörg og við þurfum að setja fjármagn í að tryggja að þessi nýsköpun geti átt sér stað. Þar þurfum við miklu meira heldur en þær lágu upphæðir sem í dag fara í þennan málaflokk, nýsköpun.
Annars held ég að við eigum eflaust eftir að fá að sjá þessa stefnu endurskoðaða nokkrum sinnum á næstu árum því hlutirnir breytast hratt. Við þurfum eflaust að setja okkur enn frekari loftslagsmarkmið og við þurfum að hætta að segja: Við erum með öðruvísi útreikninga á losun. Við þurfum bara að rannsaka það og fá réttar tölur, ekki nota þetta sem afsökun í tíu ár og gera síðan loksins einhverjar rannsóknir. Með öðrum orðum, það er ekki nóg að hafa mjög fallega stefnu eða einhverja aðgerðaáætlun, það þarf líka að tryggja fjármagn, tímasetja hlutina og gera hlutina frekar fyrr en síðar.