Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:57]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Það er af ýmsu að taka í þessari viðkvæmu matvælastefnu sem er greinilega vandmeðfarin í umræðunni ef mark má taka af þeirri viðkvæmni sem þingmenn Vinstri grænna sýna fyrir þessari umræðu og var greinileg þegar verið var að ræða hér þá þætti sem ættu einmitt að vera þeim hvað hjartfólgnastir. Það var sjálfbærnin, það var greinilega viðkvæmt. Engu að síður þá tel ég, herra forseti, að þó að mál séu viðkvæm þurfum við að taka þau til umræðu. Það er reglan, sérstaklega á það við í stjórnmálum. Það er aldrei gott að þegja það í hel sem þarf að ræða og ég held einmitt að það séu þessir hlutir.

Það sem er kannski að þessu plaggi og er í rauninni stórmerkilegt að menn hafi ekki rætt hér fyrr í umræðunni, er að við ræðum hér einhverja áætlun langt fram í tímann en það eru engar aðgerðir. Það eru engar aðgerðir til næstu fimm ára hér undir. Hér erum við með falleg orð á blaði, m.a. um sjálfbærni matvælaframleiðslu. Ég orðaði það þannig að aðgerðirnar væru kannski ekki í samræmi við það að sama dag og við erum að ræða þetta mál, hvað þá annað, sama dag og við erum að ræða sjálfbærni hérna, er verið að samþykkja að hleypa upp á grunnslóðina öflugri togurum og hafa engan hemil á vélarafli og þar með engin mörk á þyngd þeirra veiðarfæra sem eru dregin upp í fjöru. Þetta er viðkvæmt. Það kom fram í umræðunni að þingmenn Vinstri grænna sögðu að málið væri útrætt. Ég tel svo alls ekki vera vegna þess að þetta er ekkert í samræmi við það sem að flokksmenn Vinstri grænna samþykktu fyrir örfáum vikum síðan, í mars. Það að segja að ég sé með þetta á heilanum — jú, auðvitað sker þetta í augu þegar menn ganga svona fram. Er fólk virkilega svona, er virkilega hægt að vera svona ómerkilegur að vera hér að ræða sjálfbærni alla daga, vistspor og ég veit ekki hvað ekki og klæða sig grænni lopapeysu og síðan þegar til á að taka er fyrsta og eina verk dagsins í rauninni að boða það sem hefur verið kallað hér í þingsal vistmorð? Vistmorð af Vinstri grænum og það á auðvitað að ræða það.

Það er auðvitað undarlegt að vera að ræða aðgerðaáætlun langt fram í tímann án þess að vera að ræða hér einhverjar aðgerðir. Hún er í sex liðum. Það er m.a. sjálfbærnin viðkvæma og samfélagið. Ég tel einmitt að við þurfum að ræða það hvað varðar matvælaframleiðsluna og þá þurfum við að ræða það tæpitungulaust. Það er auðvitað óþolandi og ætti að vera óþolandi fyrir ráðamenn í samfélagi að halda á lofti og jafnvel að skrúfa niður kerfi í einni af undirstöðum samfélagsins, þ.e. sjávarútvegskerfinu, og það sé verið að reyna að skrúfa það fast í hverju málinu á fætur öðru, þegar 70% þjóðarinnar telur kerfið vera óásættanlegt og það sé spillt og það sé jafnvel svo að helstu hetjur kerfisins eru jafnvel farnar að bera út spillinguna, bera út spillinguna til þriðja heims landa og tíðka jafnvel þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð hér í þróunarríkjum og menn liggja jafnvel undir grun, rökstuddum grun væntanlega, hjá lögregluyfirvöldum á Íslandi og víðar og það standa yfir rannsóknir á. Það þarf auðvitað að ræða þessa matvælastefnu í samræmi við það.

Hér kallaði þingmaður eftir því að ég myndi ausa af viskubrunni mínum hvað það varðar hvernig ætti að stjórna veiðum og hvernig þetta væri. Það var auðvitað einhver kaldhæðni í því, góðlátleg. Ég ætla nú að gefa þessum ágæta þingmanni, hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni, bara gott ráð hvað varðar visku og ég vona að hann geti mátað sig við hana. Það er, held ég, gott mál ef bændur eða þeir sem eiga land ætla að nytja berin í móunum og hafa áhyggjur af því að gæsin sé að éta berin upp þá er auðvitað ein leið að fara og ráða veiðimenn og skjóta niður sem mest af gæs sem þeir komast yfir, þ.e. strádrepa gæsina. Svo er það hin leiðin, sem ég tel einfaldari fyrir bóndann, og það er að vera á undan gæsinni að tína berin. Ég held að það sama eigi einmitt við um hvalinn og fleiri þætti í lífríkinu, það er auðvitað að vera á undan, ná aflanum áður en einhver annar tekur hann. Það er alveg augljóst, hvernig sem menn fara yfir þetta, að aflinn hér fyrr á 20. öldinni var miklum mun meiri en núna hjá okkur og það er augljóslega eitthvað að. Það þarf að ræða þennan 6. lið, um rannsóknir og nýsköpun, með opnum hug. Það er auðvitað eitthvað brogað við það ef aflinn var mun meiri en nú árið 1922 á Íslandsmiðum og 1930, hátt í 500.000 tonn af þorski 1930, og svona var þetta í rauninni alla 20. öldina. Síðan þegar við förum að geyma fiskinn til að fá meira seinna þá bara gengur það ekkert upp. Þær spurningar sem ég vil kannski leggja fram er að menn skoði aðeins söguna, skoði aðrar kenningar hvað varðar stjórnunina. Ég tel að það sé eitthvað sem menn ættu fyrst og fremst að skoða, fara yfir þessa þætti, eins og ég sagði, vera á undan gæsinni áður en hún tekur berin. Þess vegna eigum við auðvitað að veiða meira í stað þess að bíða eftir því að það verði einhver afföll eins og við sjáum hvað eftir annað með fiskstofnana og hundruð þúsunda tonna týnast hvað eftir annað. Þetta þarf að ræða hér af hreinskilni og í miklu meiri mæli en gert er.

Það koma alvarlegar athugasemdir við þessa áætlun frá Bændasamtökum Íslands, eins og ég nefndi áðan. Það komu athugasemdir hvað það varðar að hún væri ekki nægjanlega skýr og ekki tekið nægilega hart á því að merkingar væru ekki skýrar og verið að villa um fyrir neytendum. Mér finnst í þeim breytingartillögum sem koma hér með aðgerðaáætluninni — ekki aðgerðaáætluninni því hana vantar heldur í þessari matvælastefnu — það hefur aðeins verið hert á orðalaginu en það er samt sem áður eins og Sveitarfélagið Skagafjörður segir, bara ófullnægjandi. Þetta er svolítið loðmullulegt plagg sem mætti vel herða á.

Menn hafa rætt hér sjálfbærnina í matvælaframleiðslunni og það hefur verið tæpt hér líka á loftslagsmálunum og þegar farið er yfir málið, hvaða aðgerðir eru á döfinni þá voru þær ekki skýrar. Það var nánast eins og að ráðuneytið vísaði því einfaldlega frá sér í hvaða aðgerðir ætti að fara. En það komu margar mjög góðar tillögur í umræðunni um mögulegar aðgerðir til að bæta orkunýtingu og í því sem mætti kalla loftslagsmál frá Bændasamtökunum. Ég tel að það ætti auðvitað að vera einhver aðgerðaáætlun í gangi og betri en sem fylgir þessu plaggi því að hún er ekki til staðar, til þess að hrinda þeim hugmyndum í framkvæmd. Það eru vissulega tækifæri og það þarf að búa til hvata til þess að ná þeim fram. Síðan þarf auðvitað, eins og ég nefndi hér, hvað varðar rannsóknirnar, að lyfta svolítið einokuninni af þessu og fá fleiri sjónarmið að. Maður heyrir það alveg, eins á og hv. þingmanni sem var að forvitnast um hvernig væri hægt að gera þetta öðruvísi, að það er einhver forvitni og menn vilja fræðast en það er eins og það sé ákveðin einokun á hugmyndum sem fá að njóta sín. Bara það sem kom fram í því sem snýr að umræðu um aflvísinn, þ.e. það væri hægt að setja inn óheft vélarafl og þar með óhefta stærð veiðarfæra inn á grunnslóðina, í þeirri umræðu kom ein skoðun frá Hafró en síðan var nánast ekkert annað sem kom frá fræðasamfélaginu vegna þess að þar ríkir að einhverju leyti einokun. En þegar maður fór að skoða það mál betur þá var alveg ljóst að það álit sem kom nú frá Hafró var algerlega í andstöðu við það sem stofnunin hafi gefið út bara fyrir örfáum árum síðan. Þar var það rökstutt mjög nákvæmlega. Ég tel að það sé vel hægt að gera betur með því að opna betur umræðuna um rannsóknir.

Það er fleiri þættir sem mætti huga að í þessari matvælastefnu og það er menntunin. Það snýr ekki endilega bara að menntun einhverra fræðinga sem eru að mæla fitur, prótein og sýrur og allt það sem krefst háskólamenntunar. Það skiptir líka afar miklu máli að mennta starfsfólk sem er að vinna í greininni sjálfri. Áhrifaríkasta aðgerðin, tel ég vera, til að ná árangri í matvælaöryggi er að fræða einmitt starfsfólkið um þá þætti sem þurfa að vera í lagi. Það er fleira hægt að gera en að tryggja eftirlit og þvingunarúrræði og sektir til að ná fram tilætluðum árangri, það er ekki síður það að tryggja að þeir sem eru að meðhöndla matvælin viti svona grunnatriði um það sem skiptir öllu máli eins og hreinlætið og að matvæli séu geymd við rétt hitastig og fleira þess leiðis.

Það var spurt hérna um stefnu Flokks fólksins og það var nú hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sem spurði. Við höfum mjög skýra stefnu hvað varðar sjávarútvegsmálin og það kom fram í umræðunni um aflvísinn að það greiddu allir þingmenn flokksins auðvitað gegn því að hafa óheft vélarafl á grunnslóðinni. Við teljum einnig auðsýnt að það sé ekki nokkur leið að ganga þannig fram gagnvart fiskstofnunum með handfærum að það geti kallast ofveiði, það er alveg útilokað. Þess vegna skilur maður ekki að það sé ekki, í þessari umræðu um matvælaöryggi, um matvælastefnu og um menningu þjóðarinnar, horft með meiri velvild og sveigjanleika til einstaklingsins sem er í veiðum og fer til handfæraveiða. Í stað þess finnst mér, eins og er bara augljóst hér af hverju frumvarpinu á fætur öðru, að það er miklu frekar verið að plægja fyrir togveiðunum og hinum stóra.

Það má almennt segja það um þetta plagg að það mætti gjarnan horfa meira til litla aðilans í samfélaginu, horfa með örlítið meiri sveigjanleika til hans hvað varðar framfylgd reglna og varðandi ýmsa þætti sem snúa að matvælastefnunni í smáu sem stóru. Það held ég að myndi gera Ísland skemmtilegra og betra samfélag en nú er. En jú, þetta eru falleg orð á blaði, mjög falleg stefna. Við eigum að verða best í heimi. Það er svona pilsner-andi í þessu, Ísland best í heimi. Við eigum að fullnýta allar afurðir og vera með allt í fremstu röð. Það er gott og við í Flokki fólksins styðjum það auðvitað. En þegar menn leggja fram svona metnaðarfulla stefnu um að vera best í heimi, í smáu sem stóru, sem snýr að matvælum, þá er eiginlega lágmarkið, herra forseti, að vera með einhverjar aðgerðir, einhverja aðgerðaáætlun. Hvað á að gera í því? Hvernig ætla menn að verða bestir í heimi? Það kemur ekki fram í þessu, engin aðgerðaáætlun í þessari matvælastefnu. Ég verð að segja að það er stundum betra að spara örlítið yfirlýsingarnar um að vera best í heimi og ætla að verða betri en við erum. Það er auðvelt að gera það. En ef maður ætlar að gera það þá verður að hafa einhverja hugmynd um hvernig maður ætlar að fara þá leið. Við höfum hér hástemmdar yfirlýsingar um hvert við ætlum að fara en engan vegvísi um hvernig það á að gerast, herra forseti.