Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1631, um raforkumál í Kjósarhreppi, frá Gísla Rafni Ólafssyni, á þskj. 1667, um endurvinnslu vara sem innihalda litín, frá Indriða Inga Stefánssyni og á þskj. 1621, um ráð, nefndir, stjórnir, starfshópa og stýrihópa, frá Bryndísi Haraldsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1727, um kínverska rannsóknamiðstöð, frá Andrési Inga Jónssyni. Að lokum hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1789, um netöryggi, frá Indriða Inga Stefánssyni, á þskj. 1799, um endurmat útgjalda, frá Bryndísi Haraldsdóttur og að lokum á þskj. 1808, um framhaldsskóla, frá Vilhjálmi Árnasyni.