Störf þingsins.
Frú forseti. Ég kem hér upp til að vekja athygli þingheims á opnu bréfi sem Hjálmtýr Heiðdal, formaður Félagsins Ísland – Palestína, hefur ritað og stílar á hæstv. ráðherra Katrínu Jakobsdóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. Þar minnir formaður Félagsins Ísland – Palestína ráðherra í ríkisstjórn Íslands á að Palestínumenn, íbúar Palestínu, hafa nú í 75 ár beðið eftir réttlæti, sjálfstæði, sjálfsögðum mannréttindum og öðrum þeim lýðréttindum sem þau eiga jafn mikinn rétt á og við sem búum á Íslandi.
Höfundur bréfsins vitnar til orða hæstv. ráðherra, með leyfi frú forseta:
„Dýpsta hugmyndafræðilega baráttan á okkar tímum snýst um mannréttindi og snýst um lýðréttindi og lýðræðismál“, hefur hann eftir forsætisráðherra. „Við getum haft áhrif á það hvernig sagan endar. Það kallar á hugrekki, visku, auðmýkt og leiðtogahæfni“, vitnar höfundur í orð hæstv. utanríkisráðherra.
Ég get tekið undir orð þessara ráðherra eins og höfundur bréfsins gerir einnig, en þau eiga við um okkur öll. Þau eiga við um allar þjóðir, öll ríki sem eru hernumin, allar þjóðir sem eru hernumdar, þau sem sæta kúgun og þau sem njóta ekki fullra mannréttinda og sjálfsstjórnar. Því vil ég nota tækifærið hér af tilefni þessa opna bréfs frá Hjálmtý Heiðdal, formanni Félagsins Ísland – Palestína, til utanríkisráðherra og forsætisráðherra, til að minna hv. þingheim á að hér var viðurkennt sjálfstæði og fullveldi Palestínu árið 2011, sjálfstæði og fullveldi Palestínu innan landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967. Þegar sú ályktun var samþykkt hér við mikinn fögnuð og mikla gleði, svo það sé líka rifjað upp, þá vorum við reyndar líka að fagna í anda arabíska vorsins sem ekki fór eins og við kannski héldum þá. En það er mjög mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum og við styðjum sjálfstæði Palestínu alla daga þó svo að aðrir atburðir á alþjóðavettvangi; stríð, átök og annað slíkt, birgi kannski sýn um sinn. Palestínumenn hafa beðið í 75 ár. Ísland ber ábyrgð á því að ákveðið var að stofna Ísraelsríki árið 1948 og þá var því lofað að Palestína skyldu fá sitt sjálfstæða ríki. Það loforð verðum við að efna og okkur ber skylda til að beita okkur fyrir því.