Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ég vil þakka Guðrúnu Hafsteinsdóttur, hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar, fyrir að taka vel í að eiga við mig orðastað í dag. Tilefnið er að í dag rennur út undanþága varðandi tollfrelsi á vörum frá Úkraínu. Bændasamtökin hafa lýst andstöðu við að þessi stuðningur við Úkraínu sé framlengdur en innflutningur þaðan mun hafa farið úr 25 millj. kr. í 94 millj. kr. frá því að undanþágan tók gildi fyrir ári síðan. Aukningin er fyrst og fremst í innflutningi á kjúklingakjöti og nemur heildarmagnið sirka 2% af markaðnum. Fyrir ári var efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis einhuga um afgreiðslu undanþágunnar og vitnaði til orða forseta Úkraínu í nefndaráliti sínu, með leyfi forseta:

„Þess vegna er mikilvægt fyrir frjálsar þjóðir heims að Úkraína verði ekki skilin eftir á berangri og berjist þar ein og afskipt við Rússland. Það er mikilvægt að allar þjóðir leggi hönd á plóg.“

Mig langar líka að vitna í svar úkraínsks kollega sem lýsti í samtali mikilvægi þess að hjól atvinnulífsins snerust áfram í Úkraínu: Þannig náum við að greiða hermönnum okkar og heilbrigðisstarfsmönnum laun. Án þess er baráttan töpuð. Framlenging þessarar tollaundanþágu er örlítið lóð á þá vogarskál og mikilvægt að það verði ekki stöðvað vegna skammtímahagsmuna þröngra hópa í íslensku atvinnulífi. Bæði Evrópusambandið og Bretland, sem líkt og Ísland svöruðu kalli Úkraínu fyrir ári, hafa framlengt undanþáguna og í gær kom fram í svari Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn formanns Viðreisnar að hún er hlynnt því að Ísland geri það líka. Mér skilst að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hafi ekki enn vísað til efnahags- og viðskiptanefndar frumvarpi um framlengingu á þessari aðstoð og ég hef áhuga á að heyra hvort hv. þingmaður, formaður nefndarinnar, eigi von á því að fjármálaráðherra leggi slíkt mál fram. Ef ekki, kemur til greina að hv. formaður eigi frumkvæði að því sjálf að efnahags- og viðskiptanefnd fari fram með málið? Hvort heldur er, (Forseti hringir.) þá væri óskandi að hv. þingmaður kæmi hingað upp með jákvæðar fréttir, taki af skarið með jákvæðum hætti.