Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það hefur legið fyrir að við lok maímánaðar muni stuðningur við Úkraínu í formi niðurfellingar tolla falla niður á vörum sem eru að öllu leyti upprunnar í Úkraínu. Þetta var tímabundin aðgerð sem Alþingi samþykkti einróma síðasta vor. Er tillagan var samþykkt í fyrra var þar tekið fram að innflutningur frá Úkraínu væri óverulegur og því um mikilvægan en jafnframt táknrænan stuðning að ræða.
Á þessu ári sem liðið er hefur margvísleg vara verið flutt til landsins en þó langmest af alifuglakjöti. Eftir því sem næst verður komist fór innflutningur á alifuglakjöti frá Úkraínu á síðasta ári úr 25 milljónum í 94 milljónir, eða sem nemur 80 tonnum á kjúklingakjöti, og það sem af er þessa árs hafa um 200 tonn verið flutt inn til landsins. Samtals nam heildartollverð innfluttra vara frá Úkraínu á síðasta ári 827 milljónum; jókst um 277 milljónir. Langmest er flutt inn af iðnaðarvöru, t.d. fatnaði, húsgögnum, járni, stáli og rafmagnstækjum. Eins og áður sagði þá er af landbúnaðarvörum langmest flutt inn af alifuglakjöti en einnig sólblómafræ, sólblómaolía, sveppir og bláber.
Í gær sagði hæstv. forsætisráðherra að það væri ábyrgðarhluti að fylgjast vel með þeim áhrifum sem þessi innflutningur kann að hafa á innlenda framleiðslu. Ég deili þeirri skoðun með forsætisráðherra. Það liggur alveg fyrir að það er mikill vilji Alþingis til að halda áfram stuðningi við Úkraínu af öllum okkar mætti. Nefndin er með málið til skoðunar. Hins vegar getur það ekki hafa verið ætlun okkar þingmanna að raska verulega og tefla í tvísýnu rekstrargrundvelli íslenskra bænda með tímabundinni ráðstöfun.