Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Dauðadómur fyrir að stunda kynlíf með einstaklingi af sama kyni, 20 ára fangelsi fyrir að tala fyrir hinseginleika — já, frú forseti, þetta er hluti af löggjöf sem kollegar okkar í Úganda samþykktu fyrir um tveimur mánuðum og forseti landsins skrifaði undir fyrr í vikunni. Þessi lög, sem eru klárt brot á alþjóðlegum mannréttindasáttmálum, gera það að verkum að Úganda er nú orðið eitt hættulegasta land í heimi fyrir hinsegin einstaklinga og stuðningsfólk þess að búa í og heimsækja.

Mikilvægt er að Ísland sendi skýr skilaboð til yfirvalda í Úganda um að við líðum ekki slík stórfelld brot á mannréttindum og að ákvarðanir eins og þessar hafi afleiðingar sem stjórnvöld í Úganda finni fyrir. Ísland er lítið ríki en rödd okkar á vægi á alþjóðavettvangi, er sterkari en íbúafjöldinn segir til um.

Þessi skilaboð þurfa að vera meira en fordæming á samfélagsmiðlum. Þau þurfa að vera diplómatísk, efnahagsleg og pólitísk. Önnur lönd sem við berum okkur saman við eru alvarlega að íhuga að stöðva þróunaraðstoð, kalla heim sendiherra og gera takmarkanir á ferðafrelsi þeirra þingmanna sem stóðu að þessari löggjöf. Mikilvægt er að við vinnum með líkt þenkjandi þjóðum í viðbragði okkar. Ég hef ásamt öðrum nefndarmönnum í utanríkismálanefnd óskað eftir því að utanríkisráðuneytið mæti á fund nefndarinnar til að fara yfir það hvernig ríkisstjórn Íslands ætlar að bregðast við þessum skýru mannréttindabrotum í Úganda, sem er eitt af þremur samstarfslöndum okkar í Afríku. Ísland, sem eitt af þeim löndum sem hefur tryggt ein bestu réttindi hinsegin fólks heima fyrir, þarf að sýna að við erum ekki bara að gera það í orði heldur líka á borði. Við þurfum að sýna að við erum forystuþjóð í baráttu fyrir réttindum hinsegin fólks um allan heim.