Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:13]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í fjölmiðlum í dag hafnar ríkislögreglustjóri því að nokkrar vísbendingar séu um að kerfislæg spilling þrífist innan lögreglunnar. Tilefni ummælanna er nýútkomin meistararitgerð í stjórnun og stefnumótun sem lýsir m.a. spillingu, ófaglegum ráðningum og frændhygli innan lögreglunnar. Það er því afar áhugavert að ríkislögreglustjóri telji þessar rannsóknarniðurstöður ekki fela í sér neina vísbendingu um spillingu innan lögreglunnar. Þessi viðbrögð þurfa hins vegar ekki endilega að koma á óvart. Þau eru raunar í takt við algeng viðbrögð lögreglunnar hér á landi við ábendingum, gagnrýni og annars konar aðhaldi. Lögreglan á Íslandi hefur vanist því að ekkert raunverulegt eftirlit sé með störfum lögreglu hér á landi.

Við Píratar höfum um árabil kallað eftir sjálfstæðu eftirliti með störfum lögreglu eins og tíðkast í nágrannalöndunum en allar tilraunir til þess hafa strandað hjá meiri hluta ríkisstjórnarinnar hér á þingi. Fyrir nokkrum árum var lítillega brugðist við þessum ábendingum með því að setja á fót hina svokölluðu nefnd um eftirlit með störfum lögreglu. Nefnd þessi hefur hins vegar engar valdheimildir og takmarkaða rannsóknargetu og hefur hún raunar sjálf lýst hlutverki sínu nánast sem póstflokkunarstöð þar sem hún tekur við kvörtunum yfir störfum lögreglu, yfirfer þær og sendir síðan til viðeigandi lögregluembætta til úrvinnslu þar. Jafnvel þetta litla en mikilvæga hlutverk nefndarinnar virðist síðan til lítils þar sem lögreglan tekur ábendingar nefndarinnar ekki alvarlegar en svo að ítarlegum og alvarlegum athugasemdum í einu stærsta lögreglumáli sem komið hefur upp hér á landi var stungið ólesnu ofan í skúffu og tilvist þeirra ekki rifjuð upp fyrr en rannsóknarblaðamenn fóru á stúfana og fóru að spyrja spurninga. Þegar ekkert raunverulegt eftirlit er með störfum lögreglu hlýtur traust almennings til hennar að byggjast m.a. á því hvernig tekið er á gagnrýni og vandamálum sem upp koma. Því eru ítrekuð viðbrögð lögreglunnar í þá átt að blása á ábendingar og áhyggjur af brotalömum nokkurs konar því alls ekki til þess að minnka áhyggjurnar. (Forseti hringir.) Þvert á móti eru þessi viðbrögð áhyggjuefni út af fyrir sig.