Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Síðastliðinn laugardag varð ég þess heiðurs aðnjótandi að halda ræðu við opnum menningarhússins Flóru þetta árið sem staðsett er í hinu merka húsi Sigurhæðum á Akureyri, hvar þjóðskáldið Matthías Jochumsson bjó. Mér er nefnilega hugleikin menning og menningarstarfsemi á landsbyggðinni. Starfsemin sem rekin er í þessu sögufræga húsi hefur gefið því nýtt hlutverk og veitir með því aðgengi að menningararfi sem annars væri á bak við luktar dyr. Starfsemin er þannig einn hluti, sannarlega mikilvægur og nauðsynlegur, grósku í annars miklu menningarlífi Norðurlands. Hinn hlutinn varðar þann menningararf sem víða er óaðgengilegur, oftar en ekki vegna fjárskorts eða skorts á stefnumótun. Menning hefur aðdráttarafl, það vitum við og það upplifðum við held ég mjög mörg t.d. í Covid þegar við komumst ekkert og fengum svo tónlist heim í stofu í gegnum sjónvarpið okkar. Víða höfum við séð sveitarfélög úti um land blómstra í kjölfar þess að stefna hefur verið sett á að gera t.d. upp hús, opna söfn og önnur menningartengd verkefni sem gefa viðkomandi stað nýjan blæ sem er aðlaðandi og um leið heillandi.
Það er því mikið kappsmál fyrir landsbyggðina að halda þétt utan um starfsemi menningar og lista og eins og dæmin sýna þá er til mikils að vinna. Ég verð að segja það að nú fram undan er stór helgi mjög víða, t.d. í minni heimabyggð, sjómannadagshelgin, þar sem hefðum er haldið á lofti, farið í róðra, farið í koddaslag og ýmislegt annað þar sem fjölskyldan nýtur saman. En, virðulegi forseti, stór hluti af menningarstarfsemi er líka á höfuðborgarsvæðinu enda býr þar meginþorri landsmanna. Þrátt fyrir það tel ég að víða mætti gera betur þar líka í þessum efnum. En á landsbyggðinni er að finna í ríkulegum mæli menningararf og sögu þjóðarinnar. Veigamikill þáttur í því að efla slíka starfsemi er að byrja snemma, að menningarlæsi og miðlun menningar kynslóð fram af kynslóð verði jafn sjálfsagður hluti af námi og danska eða stærðfræði. Það er ekki síst mikilvægt nú þegar fólk af erlendum uppruna auðgar samfélagið okkar í ríkum mæli því að við viljum að allt fólk sem hingað kemur, öll þau sem leita hér skjóls, (Forseti hringir.) geti nálgast menningu og fái hennar notið sem og deilt sinni menningu. (Forseti hringir.) Með því að treysta aðgengi alls fólks á menningu brúum við bilið á milli ólíkra menningarheima og stétta.