Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

Störf þingsins.

[15:37]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Það hefur ekki farið fram hjá okkur að það eru stór og mikilvæg verkefni fram undan við að takast á við efnahagsástandið. Staðan á vinnumarkaði er þar einn þáttur af mörgum. Því lýsi ég yfir miklum áhyggjum af þeim fréttum sem voru að berast núna, að ríkissáttasemjari muni láta af störfum á morgun. Það er alvarlegt. Því getur maður ekki annað en velt fyrir sér, þar sem það eru mjög erfiðar kjarasamningsviðræður á vinnumarkaði fram undan, hvort ríkissáttasemjari hafi metið það þannig að stjórnvöld séu að senda hann með tóma verkfærakistu inn í þessar samningaviðræður þar sem ekki er brugðist við þeirri niðurstöðu dómstóla að lagasetningin hafi ekki verið kláruð til enda hér á sínum tíma og því séu þau verkfæri sem ríkissáttasemjari taldi sig hafa ekki virk, varðandi miðlunartillögu og annað slíkt. Ég held að við þurfum að íhuga þetta vel hér á þinginu áður en þingið fer í frí, hvort embætti ríkissáttasemjara sé með tóma verkfærakistu og hvernig það sé að fara inn í svona erfiðar samningaviðræður við þær aðstæður og get ég ekki annað en lýst miklum áhyggjum yfir þessu. Við þurfum að takast á við þetta sem og mörg önnur mikilvæg verkefni núna sem fram undan eru til að takast á við verðbólguna og þá stöðu sem upp er komin í efnahagsmálunum, sem við þurfum náttúrlega líka að gera með mörgum öðrum leiðum, sem er fyrst og fremst, sem er stóra verkefnið hjá okkur, að sýna aukið aðhald og taka þannig ábyrgð þannig.