Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 114. fundur, 31. maí 2023.
aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
857. mál
Frú forseti. Þingflokkur Samfylkingarinnar styður aðgerðaáætlunina og mun styðja hana í atkvæðagreiðslunni á eftir. Ég vil þó koma hér upp til að gera grein fyrir fyrirvara fulltrúa okkar í velferðarnefnd, hv. þingkonu Oddnýjar G. Harðardóttur, en hún ritaði undir nefndarálitið með fyrirvara um fjármögnun áætlunarinnar, hvort tveggja í fjármálaáætlun til næstu fjögurra ára og ekki síður í fjárlögum þessara sömu ára.