Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[15:48]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég vil bara að það sé alveg skýrt að í gögnum málsins um fjármálaáætlun til næstu fimm ára kemur fram að það séu 200 milljónir sem gert er ráð fyrir í geðheilbrigðisáætlun á næstu tveimur árum, 100 milljónir hvort árið fyrir sig. Það vantar 3 milljarða í viðbót til að þessi geðheilbrigðisáætlun sé fjármögnuð á tímabili fjármálaáætlunarinnar. Lög um opinber fjármál eru mjög skýr með það að ríkisstjórnin þarf að koma fram með áætlun um lög, það þarf að kostnaðarmeta þau og fjármagna þau. Það er eitt að leggja fram fjármálaáætlun án fjármögnunar á þessari geðheilbrigðisáætlun og samþykkja hana hérna í þingsal, það er sjálfsagt að samþykkja hana hér í þingsal, en það gerist ekkert nema það sé fjármagn. Það er sama ríkisstjórnin sem er að gera hvort tveggja, leggja fram þessa áætlun með því kostnaðarmati sem þar er undir og leggja fram þessa fjármálaáætlun þar sem peninginn vantar. Þannig að ég hlakka til að sjá breytingartillögur meiri hlutans á fjármálaáætluninni núna þegar þessi geðheilbrigðisáætlun verður vonandi samþykkt.