Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fordæming ólöglegs brottnáms úkraínskra barna.

1122. mál
[16:25]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér upp fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar til að lýsa yfir eindregnum stuðningi okkar allra við þá tillögu sem hér er til umræðu. Hún er að sjálfsögðu flutt af allri hv. utanríkismálanefnd, eins og fram kemur í tillögugreininni, og fjallar um að Alþingi Íslendinga fordæmi ólöglegt brottnám úkraínskra barna frá landi sínu, heimilum og fjölskyldum. Hv. framsögumaður tillögunnar og hv. formaður utanríkismálanefndar, Bjarni Jónsson, notaði einnig orðið „kerfisbundið“ þegar hann lýsti þessu brottnámi hér áðan í ræðu sinni og ég velti því fyrir mér hvort það ætti að ítreka það enn frekar við samþykkt tillögunnar, að stríðsrekstur rússneskra stjórnvalda í Úkraínu og allt sem honum fylgir er ekki aðeins ólöglegur að alþjóðalögum, hann virðist líka vera kerfisbundinn stríðsglæpur, jafnvel hópmorð. Það skiptir máli að það komi fram að svona hlutir gerast ekki í neinu tómarúmi, þeir gerast vegna fyrirmæla, vegna skipulagningar og áætlana sem eiga sér rætur í innsta kjarna stjórnkerfisins í Rússlandi.

Það þarf í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð um greinargerð þessarar tillögu. Hún lýsir því vel hver staðan er og hvernig okkur ber að bregðast við henni. Mér finnst það vera við hæfi að Alþingi Íslendinga gangi fram fyrir skjöldu til varnar þeim börnum og ungmennum sem hafa verið brottnumin. Það er stríðsglæpur að afmá þjóðerni, tungumál, menningu og sögu. Það er stríðsglæpur árið 2023, rétt eins og það var stríðsglæpur árið 1941 eða 1931. Við verðum að gera ekki bara okkar eigin samfélagi heldur samfélagi þjóða ljóst að við vitum hvað er að gerast, við fylgjumst með því og við fordæmum það og þegar þessu stríði lýkur þá verða æðstu stjórnendur rússneska ríkisins og hersins dregnir fyrir dómstóla til að standa skil á gjörðum sínum. Það verður að gerast. Það var einmitt þess vegna sem alþjóðlegi sakadómstóllinn gaf út handtökuskipun á forseta Rússlands, Vladímír Pútín, og umboðsmann barna í Rússlandi fyrir stríðsglæpi vegna brottnáms úkraínskra barna. Það sætti nokkrum tíðindum eins og hér hefur fram komið en það voru um leið mjög mikilvæg skilaboð til alþjóðasamfélagsins, auðvitað til Úkraínu og fólksins þar, en ekki síður til þeirra sem lögðu í þetta ólöglega innrásarstríð og hafa kallað þessar hörmungar yfir Úkraínu á síðasta rúma ári.

Ég held, frú forseti, að það þurfi ekki að hafa mörg orð um það hér hvaða áhrif það hefur á börnin og ungmennin sem í þessu lenda til langframa að vera numin á brott með þessum hætti. Þau sem komist hafa til baka hafa sjálf lýst í fréttum og fréttaviðtölum örvæntingunni og hræðslunni sem greip þau og við vitum að við þurfum að ná þeim til baka, ef svo má segja. En það þarf líka að sjá til þess að þegar úkraínsku börnin verða öll komin aftur heim til sín þá styðjum við áfram við Úkraínu og það starf sem þar þarf að fara fram af því að starfið eftir stríðið skiptir líka mjög miklu máli, sálgæslan, aðhlynningin, heilbrigðisþjónustan og allt það sem það fólk, þau börn og ungmenni sem í þessu hafa lent, mun þurfa á að halda.

Ég treysti því að stuðningur íslenskra stjórnvalda og okkar allra við Úkraínu og í baráttunni gegn ólöglegu innrásarstríði standi eins lengi og þarf. Það krefst úthalds, það krefst framsýni og það krefst líka staðfestu og því fagna ég mjög að þessi tillaga liggi hér fyrir og geri ráð fyrir því, þar sem hún er flutt af allri hv. utanríkismálanefnd, að hún fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi og sendi þar með afgerandi skilaboð út til alþjóðasamfélagsins um afstöðu Alþingis Íslendinga og Íslendinga, landsmanna, þess fólks sem býr í okkar góða landi, til hins fordæmanlega, ólöglega og kerfisbundna brottnáms úkraínska barna.