Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fordæming ólöglegs brottnáms úkraínskra barna.

1122. mál
[16:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Eftir innrás Rússa í Úkraínu hafa Rússar flutt þúsundir úkraínskra barna með valdi til svæða undir stjórn þeirra og úthlutað þeim rússneskum ríkisborgararétti, ættleitt þau með valdi inn í rússneskar fjölskyldur og skapað hindranir fyrir sameiningu þeirra við foreldra sína og heimaland. Sönnunargögnum um þetta hefur verið safnað í rannsóknum á vegum alþjóðlegra stofnana og hópa, þar á meðal skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn, Amnesty International og Missing Children Europe. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að þessar brottvísanir teljist stríðsglæpir. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun á hendur Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem hefur beinlínis stutt þvingaðar ættleiðingar, m.a. með því að setja lög til að auðvelda þær. Auk þess hefur dómstóllinn gefið út handtökuskipun á hendur barnaréttindastjóra Rússlands. Maríu Lvovu-Belovu, fyrir þátttöku hennar í þessum aðgerðum. Samkvæmt alþjóðalögum, þar á meðal sáttmála Sameinuðu þjóðanna um ráðstafanir gegn og refsingar fyrir hópmorð frá 1948, teljast aðgerðir eins og þessar þjóðarmorð ef þær eru gerðar með ásetningi að tortíma þjóð eða þjóðernishópum í heild eða hluta, þar með talið að afmá þjóðareinkenni þeirra.

Úkraínsku börnunum hefur verið rænt af rússneska ríkinu eftir að foreldrar þeirra höfðu verið handteknir af rússneskum hernámsyfirvöldum eða þau drepin drepinn í innrásinni eða eftir að hafa orðið viðskila við foreldra sína á stríðssvæðunum. Börnum hefur einnig verið rænt frá úkraínskum ríkisstofnunum á hernumdu svæðunum, þar á meðal barnaheimilum og munaðarleysingjahælum. Áætlanir um fjölda barna sem numin hafa verið á brott eru á bilinu 16.000–300.000. Ég ætla að endurtaka þetta, 16.000–300.000 börn. Langflestum barnanna sem hefur verið rænt hefur verið rænt frá suður og austurhluta Úkraínu eða frá héruðunum Kherson, Kharkív, Saporísja, Dónetsk, Lúhansk og Míkolaív. Örugglega fór ég rangt þarna með framburð á einhverjum héruðum, frú forseti. Samkvæmt vitnisburði sem rannsóknarnefndir á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa aflað hafa sum barnanna upplifað slæmar aðstæður, ófullnægjandi umönnun og ofbeldi á meðan þau hafa verið undir forsjá rússneska ríkisins. Börn sem hafa náð að komast aftur til Úkraínu hafa borið vitni um harðar refsingar og erfið lífsskilyrði á meðan þau voru í Rússlandi. Úkraínsk stjórnvöld hafa einnig haldið því fram að sum börn hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun eftir að hafa verið flutt með valdi til Rússlands. Samkvæmt grein í New York Times hafa rússneskir embættismenn haldið því skýrt fram að markmið þeirra sé að skipta út hvers konar tengslum barnanna við heimili þeirra í æsku og föðurland eða móðurland fyrir ást til Rússlands. Við komuna til Rússlands er börnunum komið fyrir á heimilum og þau heilaþvegin t.d. með því að telja þeim trú um að foreldrar þeirra séu dánir eða hafa yfirgefið þau eða hati þau.

Fyrir hönd þingflokks Pírata þá lýsi ég yfir eindregnum stuðningi við þessa þingsályktunartillögu. Það er sönn ánægja að hér á Alþingi er algjör samstaða um það að fordæma harðlega þessa skelfilegu atburði og verða þar með fyrst þjóðþinga til að gera það.

Frú forseti. Slava Ukraini.