fordæming ólöglegs brottnáms úkraínskra barna.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að fagna þessari tillögu sem hér er fram komin. Því miður er hún ekki komin til af góðu og er afar sorglegt að fá upplýsingar um það hvernig hefur verið farið með börn í Úkraínu. Tillagan krefst tafarlausrar athygli alþjóðasamfélagsins og er að mínu viti þannig úr garði gerð að hér hefur Ísland tækifæri til að taka forystu í mannúðarmáli. Tillagan ætti þar af leiðandi að vekja verðskuldaða athygli. Verði hún samþykkt hér á Alþingi, sem ég vonast til að verði á komandi dögum, sýnir hún ákveðið fordæmi.
Brottnám rússneska hersins á úkraínskum börnum af hernumdum svæðum í Úkraínu og flutningi þeirra, bæði innan þeirra svæða og til Rússlands og Belarúss, er hér með harðlega mótmælt. Sá sem hér stendur vonar að við sem störfum í þessum þingsal komum til með að samþykkja þessa tillögu samhljóða. Ég efast reyndar ekki um það eitt augnablik, enda hefur hjarta okkar slegið með úkraínsku þjóðinni alla daga frá því að Rússar réðust inn í landið. Íslensk stjórnvöld og öll íslenska þjóðin hefur fordæmt tilefnislausa og ólöglega innrás Rússa í Úkraínu og lýsti yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld. Í kjölfarið munu vonandi fleiri þjóðþing leggja fram og samþykkja samhljóða tillögu sem þessa.
Nefndarmenn í utanríkismálanefnd áttu áhrifaríkan fund með úkraínskum þingmönnum þegar leiðtogafundurinn var haldinn hér á landi í maí, eins og framsögumaður hefur nefnt, og var það mat nefndarmanna og framsögumanns að það væri sannarlega tilefni til að koma með tillögu sem þessa.
Rán á börnum er svívirðilegt athæfi og gengur nærri hjarta okkar. Líkt og komið hefur fram er talið að um 20.000 úkraínskum börnum hið minnsta hafi verið rænt af heimilum sínum og verið ættleidd eða komið fyrir í fóstri hjá rússneskum fjölskyldum og fréttir berast af því að þau hafi verið beitt miklu harðræði og ofbeldi. Hér er um að ræða hræðilegan harmleik sem snertir unga og viðkvæma einstaklinga. Þetta athæfi er skýrt brot á réttindum og velferð saklausra barna sem alþjóðasamfélagið getur ekki og má ekki loka augunum fyrir.
Þessi fordæming okkar á brottnámi úkraínskra barna er ekki aðeins sprottin af siðferðilegum toga heldur er einnig mikilvægur liður í að viðhalda þeim meginreglum sem við sem samfélag höfum sett okkur um réttlæti, samúð og mannréttindi. Þá gerum við vitaskuld þá skýlausu kröfu að rússnesk stjórnvöld og rússneska hernámsliðið sem ber ábyrgð á þessum hryllingi bindi tafarlaust enda á brottnám barna með skjótum og afgerandi hætti. Svört og ítarleg skýrsla Evrópuþingsins um brottnám og nauðungarflutninga úkraínskra barna og annarra óbreyttra borgara til Rússlands eða til hernumdu svæðanna innan Úkraínu staðfestir alvarleika málsins þótt erfitt sé vegna stríðsástandsins að meta umfangið með fullkomnum hætti. En ástandið er sannarlega grafalvarlegt. Verið er að slíta gríðarlegan fjölda úkraínskra barna frá fjölskyldum sínum og verið með kerfisbundnum hætti að afmá Úkraínu og úkraínska sjálfsmynd þeirra og menningu með því að útsetja þau fyrir rússneskri tungu, menningu, áróðri og söguskoðun.
Líkt og kemur fram í greinargerð með tillögunni hefur Evrópuþingið undirstrikað að flutningur barna með valdi frá einum hópi til annars í þeim tilgangi að útrýma með öllu eða að hluta þjóð, þjóðernishópi, kynstofni eða trúflokki sem slíkum teljist hópmorð. Er það undirstrikað í samþykktum Sameinuðu þjóðanna.
Með þessari tillögu fordæmum við ekki aðeins rán á börnum heldur förum við einnig fram á að allar leiðir verði virkjaðir til að tryggja að öllum þeim börnum sem hafa verið tekin á brott frá fjölskyldum sínum verði komið aftur til foreldra eða annarra nákominna svo fljótt sem auðið er. Í því samhengi þarf alþjóðasamfélagið að veita þeim fjölskyldum sem hafa orðið fyrir þessum harmleik allan þann stuðning sem hægt er að veita. Auk þess þarf að tryggja með öllum tiltækum ráðum velferð þessara barna og þau fái, þegar þau verða flutt aftur til síns heima, viðhlítandi umönnun sem er í takt við þann harmleik sem þau hafa gengið í gegnum.
Að lokum, virðulegi forseti, vil ég segja að það er að mínu mati skylda okkar sem samfélags að fordæma harðlega brottnám úkraínskra barna og ég held ég tali fyrir allan þingflokk Framsóknarflokksins svo sannarlega að við komum til með að styðja þetta þarfa mál. Ég vænti þess, eins og ég hef nefnt hér í ræðu minni, að þingheimur geri það og samþykki tillöguna samhljóða.