fordæming ólöglegs brottnáms úkraínskra barna.
Virðulegur forseti. Við eigum okkur hér á Íslandi sögu um átök um eignir, land og landgæði sem leiddu til upplausnarástands og vígaferla sem endaði með því að Noregskonungur var til kvaddur til að koma á skikk. Eitt er að berjast um landsvæði og gera ágreining um slíkt. Það að taka börn náunga síns, gera þau brottræk og fela þau frá foreldrum sínum er sannarlega eitt það viðbjóðslegasta sem maður getur ímyndað sér að myndi henda mann sjálfan. Og á þeim skala sem þetta er á átakasvæðunum er tilhugsunin yfirþyrmandi um líðan barnanna og líðan foreldranna sem hér eiga hlut að máli. Að sjálfsögðu erum við öll sammála um þá þingsályktunartillögu sem hér er fram borin og ég efast ekki um að þingheimur verður á grænu í þeirri atkvæðagreiðslu. Ég vil þakka formanni utanríkismálanefndar og nefndarmönnum fyrir einhuginn sem speglaðist í því að þetta var samþykkt samhljóða og allir sem komu að á einu máli.
En getum við lært eitthvað af þessu? Getum við horft á þetta sem einhvers konar skilaboð eða lexíu til okkar sjálfra um hvað er þarna í gangi? Eftir seinni heimsstyrjöldina voru ýmsar stofnanir settar á stofn; NATO, Sameinuðu þjóðirnar. Í dag telja Sameinuðu þjóðirnar 100.000 starfsmenn í fjölmörgum löndum og fyrst á dagskrá Sameinuðu þjóðanna við stofnun var að koma í veg fyrir stríð af þeim toga sem við erum nú hrokkin upp við, ekki svo langt undan. Um miðja síðustu öld var heiminum stjórnað af nokkrum svona viðlíka villimönnum og þeim sem stýra för í gamla Bjarmalandinu í dag. Ég nefni Stalín, ég nefni Hitler, ég nefni Maó og ýmsa fleiri sem á öllum mælikvörðum okkar yrðu dæmdir kolgeðveikir. Það sem ég er að vísa í núna er kannski: Gæti þetta ástand sem þarna er og þessi ein hryllilegasta birtingarmynd af því, sem er þessi barnastuldur og kerfisbundna áætlun um að nema brott úkraínsk börn, fara með þau í annað umhverfi, til annars fólks, ekki verið til þess fallið að vekja okkur upp við það að þrátt fyrir allar stóru stofnanirnar og allt það sem átti að vera öryggisnet og öryggisveggir gegn því að svona gæti yfir höfuð gerst, getur hér 2022, 2023, 2024, 2032, hvenær sem er, hent og við höfum engin ráð til að stöðva galskapinn og brjálæðið og viðbjóðinn? Þá held ég að við ættum bara að huga að því að maðurinn er alltaf einn, við erum eyland. Við skulum ekki vera svo bernsk og einföld að halda að það verði passað upp á okkur við hvaða aðstæður sem er. Við skulum huga að varnarkerfum okkar sjálfra sem myndu mögulega geta fyrirbyggt svona harmleiki hér á þessu landi, þessum girnilega konfektmola grænu orkunnar og allsnægtanna efst á hnattkúlunni. En maður sendir hlýjustu strauma og við vonum að þetta taki enda, þessi harmleikur taki enda, þessi harmleikur sem hlýtur að vera þungbærastur þeim sem kannski hafa fengið að lifa af en hafa misst börnin sín í hendur villimanna.
Ég fagna þessu framlagða máli hér og við í Flokki fólksins styðjum það að sjálfsögðu.