landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Virðulegi forseti. Nei, það var enginn ágreiningur um þetta mál á síðasta kjörtímabili. Ég held að við höfum náð ágætlega utan um þetta, 1.000 hektarar. Kannski má segja að við séum oft að eltast við það sem áður hefur gerst og það má segja einmitt að þessi lög hefðu þurft að vera komin fyrir löngu síðan, um takmörkun á eignarhaldi á jörðum. En þau náðu sannarlega í gegn á síðasta ári og það er í kringum 1.000 hektarar sem fólk má eiga. En það er mikilvægt að halda því til haga að það er ekki endilega ríkisins að skilgreina ræktarland eða hvað er sumarbústaðaland eða annað slíkt, það eru sveitarfélögin sem eiga að skilgreina það sem undir þau heyrir, hvað er ræktarland og hvað er fyrir íbúabyggð, sumarbústaði eða sportveiðimennsku eða guð má vita hvað. Það eru fyrst og fremst sveitarfélögin. En svo auðvitað þekkjum við það að víða til sveita er það þannig að menn eiga bara heilu landsvæðin. Fólk getur ekki farið til berja nema biðja um leyfi. Það er arfur frá gamalli tíð sem erfitt er við að eiga í dag og ég er ekki viss um að við náum endilega utan um það sisvona að vaða inn á þann eignarrétt. Það getur verið talsvert snúið. En ég tel að stóra málið í þessu sem hv. þingmaður er hér að nefna er að koma í veg fyrir að einn og sami aðilinn geti eignast risastórt land og út um allar koppagrundir, þ.e. sameiginlegt, því að það telst jú sameiginlegt nema menn fari í einhverjar aðrar leiðir í því. Ég tel okkur hafa náð þokkalega vel utan um það á síðasta kjörtímabili. En umræða um þessi mál á sannarlega alltaf að vera til staðar því að það er ekki gott ef við lendum í því að land og ræktarland fari undir eitthvað allt annað en við kysum.