Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[17:28]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir góða framsögu og góða samvinnu í atvinnuveganefnd. Það er eitt sem slær mig smá; hér fyrr í dag vorum við að samþykkja matvælastefnu til sömu ára og þar gerði meiri hlutinn breytingartillögu þar sem kolefnissporsmerkingar voru teknar út úr kröfunni um matvæli. En hins vegar virðist vera, ef ég skil rétt, að bæði liður 7.3 og 7.4 auk liðar 2.2 geri það að verkum að landbúnaðarvörur munu fá kolefnissporupplýsingar á sig. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Fyrst meiri hlutanum finnst mögulegt að gera þetta fyrir landbúnaðarvörur, af hverju ekki fyrir allar aðrar vörur sem matvælastefnan hefði náð yfir?