Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[18:32]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir prýðisgóða ræðu. Í ljósi þess að maður kemur ekki að tómum kofanum þar sem hv. þingmaður er þegar kemur að þekkingu og reynslu í þessum málaflokki þá langar mig að spyrja um tvennt hérna í fyrri umferð og vil beina athyglinni að því sem kemur fram í 7. kafla tillögunnar um neytendur þar sem segir, með leyfi forseta:

„Sérstaklega verði hugað að leiðum til að auðvelda neytendum að velja vörur eftir eigin gildum og afstöðu til landbúnaðarframleiðslu, m.a. með bættum upplýsingum um uppruna, innihald og kolefnisspor landbúnaðarafurða.“

Við höfum gjarnan rætt hér í þingsal og tekist á um, ef við erum í stuði, upprunamerkingar og uppruna innfluttra landbúnaðarvara. En hér erum við að tala um innlenda vöru. Það hefur löngum verið kvartað undan því að það hafi ekki tekist, neytendur hafi ekki alveg haft tök á því að kynna sér upprunann. Það er alveg ljóst að neytendur eru í ríkari mæli að gera slíkar kröfur og við getum t.d. horft á þá þróun sem er að gerast í fiskeldinu, hvernig neytendur velja sína vöru. Það er ekkert endilega rétt eða rangt þar, þeir bara hafa áhuga á að vita þetta. Ég velti því fyrir mér hvað hv. þingmaður hefur um það að segja, hvort hann sé sammála mér í því að það sé líka mikilvægt að koma þessu á í innlendri matvælaframleiðslu og veita neytendum möguleika á að kynna sér upprunann. Og þegar maður er kominn á þessar slóðir er óhjákvæmilegt að spyrja um afstöðu til lausafjárgöngu sauðfjár. Telur hv. þingmaður að það sé framtíðin í matvælaframleiðslunni okkar og landbúnaðarstefnu að neytendur hafi valið og mun það skipta máli? Hvað segir hv. þingmaður um það, hokinn af reynslu og sjálfur bóndi?