Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

landbúnaðarstefna til ársins 2040.

914. mál
[18:34]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar og ég reikna með að ég komist nú bara yfir aðra spurninguna í fyrri umferð. Ef við snúum okkur að neytendunum og merkingu matvæla þá er það bara eitt allra stærsta atriðið varðandi virðingu framleiðenda fyrir neytendum að vera ekki að villa um og þar af leiðandi, hvort sem um er að ræða innflutt matvæli eða innlend, er lykilatriði að varan sé rétt merkt. Við höfum verið að ræða hérna kolefnisfótspor og þess háttar og vonandi verður það framtíðin að við getum sýnt fram á það sömuleiðis, hvort sem er á innlendum matvælum eða erlendum. Þetta er bara eitt af stóru verkefnunum og því miður hefur það gengið of hægt. Við erum búin að vera að eiga við merkingar á matvælum í mörg ár. Það eru ekki nema tvö ár síðan eða þrjú að það kom samhæft merki sem væri hægt að nota á allar innlendar matvörur. En lykilatriðið er að neytandinn þurfi ekki stækkunargler eða túlk til að átta sig á því hvaðan varan er og hver uppruni hennar er, hvort sem hún er erlend eða innlend. Lykilatriðið gagnvart neytandanum er að framleiðandinn komi fram við hann eins og hann vill að neytandinn komi fram við sig, þ.e. velji sína vöru, og til þess að neytendur velji þá vöru sem framleiðandi er að selja, hver sem hann er, þá þarf alltaf að segja satt og rétt frá. Þar af leiðandi eru merkingar lykilatriði.