landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni góðar spurningar. Ég ætla að víkja að lausagöngu búfjár og hvort það sé framtíðin. Það má betur gera hvað það varðar, skal ég alveg segja. Er það framtíðin að fé verði bara lokað af á litlum túnum? Ég held ekki. Hitt er svo annað mál að við getum alveg séð fyrir okkur að viss svæði verði beitarsvæði fyrir sauðfé en ekki að sauðkindin geti vaðið um allt. Ég held að það liggi fyrir að sú breyting verður á næstu árum og áratugum, hún verður væntanlega hægfara en hún gerist, held ég. Til að mæta þörfum neytenda þá er það vissulega hluti af markaðssetningu lambakjöts — og þekki ég hana nokkuð vel — sérstaklega gagnvart erlendum ferðamönnum, að kindin er búin að vera frjáls síðan 874, hefur gengið frjáls um. Það er hluti af því. Það er vissulega líka þannig að ef rétt er staðið að þessum hlutum, að fé sé sleppt á ákveðin svæði og þær eru bara þar, þá er þetta bara allt í himnalagi að mínu viti. En vissulega er mikil brotalöm mjög víða þar sem lausaganga veldur ákveðnum usla, við getum orðað það þannig, og hefur verulega neikvæð áhrif á þessa framleiðslu. Til framtíðar litið þá myndi ég segja að við horfum frekar á afmörkuð svæði og á því svæði verði lausafjárganga leyfð en annars staðar verður hún bönnuð. Það er málefni sveitarfélaganna að ákveða hvernig það verði gert.