landbúnaðarstefna til ársins 2040.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir yfirgripsmikla og góða ræðu um þarft þingmál. Það væri fróðlegt að heyra hvað hv. þingmanni finnst um þessa verkefnisstjórnun sem við horfum nú á af hendi hæstv. matvælaráðherra. Það á að ná fram kolefnishlutleysi 2040. Síðan erum við ekki með neinn vegvísi á þessari leið, enga stiku, engin mælanleg markmið á leiðinni. Þetta kemur mér spánskt fyrir sjónir. Það væri gott að fá afstöðu hv. þingmanns hvað þetta varðar. Mætti ekki að einhverju leyti bæta þetta? Síðan hinn þátturinn, að vera ekki með neinar aðgerðir, það hefði gert þetta að trúverðugra og betra plaggi að hafa aðgerðir, tel ég vera.