Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[18:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla).

Meginefni frumvarpsins er að framlengja gildistíma ákvæða um stuðning við einkarekna frétta- og dagskrármiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta og fréttatengds efnis og umfjöllunar um samfélagsleg málefni. Lagt er til í frumvarpinu að gildistími ákvæðanna verði framlengdur um tvö ár. Þá eru gerðar breytingar á gildandi ákvæðum laganna sem felast m.a. í breyttri skipan úthlutunarnefndar og heimild til að afla álits sérfróðra aðila. Þá er lagt til nýtt ákvæði sem mælir fyrir um að aðrir opinberir styrkir sem umsækjandi hafi hlotið verði almennt dregnir frá þeirri fjárhæð sem telst stuðningshæfur kostnaður.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Nefndin fjallaði um þær breytingar sem hafa orðið á fjölmiðlamarkaði síðustu ár sem hafa orðið til þess að rekstrargrundvöllur einkarekinna fjölmiðla hefur veikst. Meðal annars hefur tilkoma samfélagsmiðla og tæknirisa haft áhrif á markaðinn og dreifingu auglýsingatekna.

Með 1. gr. frumvarpsins er markmið stuðnings við einkarekna fjölmiðla undirstrikað, þ.e. að styrkja lýðræðishlutverk fjölmiðla með fyrirsjáanlegu stuðningskerfi. Meiri hlutinn tekur undir framangreint og leggur áherslu á mikilvægi lýðræðishlutverks fjölmiðla.

Fyrir nefndinni var m.a. fjallað um það að styrkir til einkarekinna fjölmiðla væru í reynd samfélags- og lýðræðislegir styrkir en ekki hefðbundnir atvinnustyrkir. Meiri hlutinn telur þörf á að styðja við markaðinn og jafna stöðu íslenskra fjölmiðla gagnvart samkeppni við erlenda miðla, ekki síst vegna smæðar íslensks málsamfélags, enda er það menningarlegt hlutverk fjölmiðla að styðja við tungumálið.

Fyrir nefndinni var rætt um að vöxtur samfélagsmiðla og tæknifyrirtækja hafi valdið straumhvörfum á auglýsingamarkaði og veikt stöðu einkarekinna fjölmiðla verulega. Á sama tíma hefur Ríkisútvarpið haldið sinni sterku stöðu á auglýsingamarkaði í skjóli þeirrar miklu dreifingar sem miðlar Ríkisútvarpsins hafa. Þessu til viðbótar hefur prentkostnaður og heimsmarkaðsverð á pappír hækkað hratt sem kemur prentmiðlunum afar illa.

Fyrir nefndinni kom fram að margir hinna einkareknu fjölmiðla telja yfirburði Ríkisútvarpsins takmarka tekjuöflunarmöguleika einkarekinna fjölmiðla umtalsvert og finnst mikilvægt að Ríkisútvarpið víki af þeim markaði. Aftur á móti voru aðrir umsagnaraðilar sem töldu að slík ráðstöfun myndi ekki endilega skila sér í auknum auglýsingatekjum annarra miðla.

Meiri hlutinn telur að áður en tekin er ákvörðun um grundvallarbreytingu á veru Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði þurfi að fara fram ítarleg rannsókn og greining á fjölmiðla- og auglýsingamarkaðnum í heild sinni til að tryggt sé að auknar auglýsingatekjur skili sér sannarlega til einkarekinna fjölmiðla hér á landi. Meiri hlutinn telur aftur á móti að full ástæða sé til að endurskoða rekstur Ríkisútvarpsins hvað auglýsingadeildina varðar og telur æskilegt að hún verði lögð niður og auglýsendur geti pantað auglýsingar í gegnum vef Ríkisútvarpsins þar sem fyrir liggur verðskrá sem ekki er veittur afsláttur af.

Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs kemur fram að ríkisstjórnin ætli sér að efla starfsemi einkarekinna fjölmiðla og styrkja lýðræðishlutverk fjölmiðla. Því telur meiri hlutinn mikilvægt að stjórnvöld haldi áfram að styðja við einkarekna fjölmiðla, en leitist við að gera það með óbeinum hætti, svo sem með því að fjölga tekjuöflunarmöguleikum þeirra eða með skattalegum ívilnunum. Til frambúðar ætti að hverfa frá beinum styrkveitingum ríkisins til fjölmiðla enda stangast það á við eitt af meginhlutverkum fjölmiðla sem er að veita stjórnvöldum aðhald.

Umsagnaraðilar voru almennt sammála því að það er mikilvægt að styðja við einkarekna fjölmiðla. Helsta gagnrýnin sem fram kom í umsögnum var mikilvægi þess að ganga lengra og skoða víðtækari beinan og óbeinan stuðning við einkarekna fjölmiðla, m.a. stöðu þeirra á auglýsingamarkaði, skattumhverfi og frekari stuðning. Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að móta heildstæða stefnu til lengri tíma og tryggja fyrirsjáanleika fyrir rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla. Nú stendur yfir vinna við gerð fjölmiðlastefnu í menningar- og viðskiptaráðuneyti þar sem stefna verður mörkuð til næstu ára. Þá fagnar meiri hlutinn því að menningar- og viðskiptaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hafi sett á laggirnar tvo starfshópa, annar fjallar um gjaldtöku á erlendar streymisveitur og hinn um málefni Ríkisútvarpsins. Þeim er báðum ætlað að skila niðurstöðum eigi síðar en 1. júlí nk. Nauðsynlegt sé að marka stefnu í málaflokki fjölmiðla þar sem tekist er á við áskoranir í rekstrarumhverfi fjölmiðla. Þar gæti ítarleg greining á stöðunni á fjölmiðlamarkaði hjálpað til við að marka stefnuna.

Frumvarp þetta er lagt fram með það að markmiði að framlengja gildistíma ákvæða um stuðning við einkarekna fjölmiðla á meðan unnið er að útfærslu á framtíðarfyrirkomulagi á rekstrarumhverfi og stuðningi við fjölmiðla. Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að ráðist verði í mikilvægar úrbætur á rekstrarumhverfi fjölmiðla samhliða framlengingu á gildistíma þessarar löggjafar, með það að markmiði að þær verði innleiddar fyrir lok gildistímans. Í þeirri vinnu er nauðsynlegt að allt rekstrarumhverfi fjölmiðla sé undir, skipulag og skyldur Ríkisútvarpsins og fjármögnunarmöguleikar fjölmiðla og skattar og gjöld á fjölmiðla svo dæmi séu tekin. Í því samhengi bendir meiri hlutinn á þær tillögur sem nefnd um rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla skilaði í janúar 2018, þar sem er m.a. fjallað um endurgreiðslukerfi, stöðu á auglýsingamarkaði og skattumhverfið og stuðning við textun og talsetningu.

Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um mikilvægi ritstýrðra fjölmiðla vegna aukins magns falsfrétta og upplýsingaóreiðu sem gæti mögulega haft áhrif á lýðræði þjóðríkja. Telur meiri hlutinn því mikilvægt að þetta mál nái fram að ganga, sem og fjölmiðlastefna stjórnvalda sem ráðherra málaflokksins hefur boðað á næsta löggjafarþingi ásamt þeim breytingum á starfsemi Ríkisútvarpsins sem fjallað hefur verið um hér að framan.

Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Lagt er til að ákvæði X. kafla B sem mæla fyrir um stuðning við einkarekna fjölmiðla og féllu úr gildi við áramót verði tekin upp að nýju, ásamt þeim breytingum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu. Auk þess er lagt til að lögin öðlist þegar gildi.

Þá leggur meiri hlutinn til að staðbundnir fjölmiðlar, utan höfuðborgarsvæðisins, hljóti sérstakt 20% landsbyggðarálag ofan á þann styrk sem þeir annars fengju úthlutað. Alþingi samþykkti í fjárlögum fyrir árið 2023 að veita 100 millj. kr. viðbótarframlag til stuðnings við einkarekna fjölmiðla. Við útfærslu leiðarinnar er horft til þess markmiðs sem lýst er í áliti meiri hluta fjárlaganefndar, þ.e. að styrkja og efla staðbundna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins. Breytingartillagan fellur vel að því markmiði að styrkja frekar staðbundna fjölmiðla og lýðræðislega umræðu á landsbyggðinni.

Loks telur meiri hlutinn, samhliða breytingu sem mælir fyrir um stuðning við staðbundna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins, mikilvægt að koma til móts við staðbundna miðla óháð staðsetningu. Á grundvelli laga um fjölmiðla merkir staðbundinn fjölmiðill landshluta-, héraðs-, hverfis- eða bæjarmiðil sem hefur fyrst og fremst staðbundna efnisskírskotun og höfðar aðallega til notenda sem hafa tengsl við útbreiðslusvæði miðilsins. Samkvæmt 62. gr. g er mælt fyrir um skilyrði sem einkareknir fjölmiðlar þurfa að uppfylla til að geta fengið stuðning og er m.a. mælt fyrir um að prentmiðlar skulu koma út að lágmarki 20 sinnum á ári. Í því skyni að auka möguleika staðbundinna miðla, óháð staðsetningu, til að sækja um styrk leggur meiri hlutinn til breytingu þar sem þröskuldurinn er lækkaður svo að staðbundnir prentmiðlar þurfi að koma út 12 sinnum á ári til að vera styrkhæfir.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson, Jódís Skúladóttir og Jóhann Friðrik Friðriksson.

Hæstv. forseti. Fjölmiðlar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í lýðræðissamfélögum. Síðastliðin ár hafa íslenskir fjölmiðlar þurft að mæta ýmiss konar áskorunum og stöðu þeirra hefur hrakað. Fjölmiðlar veita stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald og borgurum upplýsingar. Meiri hluti hv. allsherjar- og menntamálanefndar leggur það til að horft verði til þess að núverandi fyrirkomulag sé einungis til bráðabirgða þó að því fylgi ýmsir kostir. En það að þessi tillaga sé lögð fram þýðir ekki að við séum að leggja til að hætta að styrkja fjölmiðla. Fjölmiðlar eru hornsteinn lýðræðisins og það er mjög mikilvægt að við höldum því til haga og gætum að því að hér séu fjölmiðlar sem geti sinnt sínu hlutverki.