Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[19:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Störf í fjölmiðlum árið 2013 voru 2.238. Árið 2020 voru þau 876. Þetta eru tölur sem lýsa algeru niðurbroti fjölmiðla. Nú síðast lagði Fréttablaðið upp laupana. Þetta er slæm staða og hún á m.a. rætur að rekja til þess að hér hefur ekki verið rekin eða mörkuð skýr stefna þegar kemur að rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Á undanförnum árum hefur þó hæstv. menningarráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, beitt sér fyrir ákveðinni breytingu, að hér verði komið upp styrktarkerfi út frá hlutlægum viðmiðum og fyrirsjáanlegum leikreglum til að styðja við einkarekna fjölmiðla. Stóru fréttirnar í því nefndaráliti sem hv. þm. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir mælti fyrir hér rétt í þessu eru auðvitað þær að hér virðast hv. þingmenn Framsóknarflokksins og Vinstri grænna vera komnir í lið með Sjálfstæðisflokknum í þeirri vegferð að kæfa í fæðingu þessar tilraunir hæstv. menningarráðherra, úr Framsóknarflokknum, til að koma á slíku kerfi. Ég er mjög hissa á þessu. Ég ætla að lesa hér upp úr nefndarálitinu, með leyfi forseta:

„Til frambúðar er mikilvægt að horfið verði frá beinum styrkveitingum ríkisins til fjölmiðla enda stangast það á við eitt af meginhlutverkum fjölmiðla sem er að veita stjórnvöldum aðhald.“

Hvað í ósköpunum meinar meiri hluti nefndarinnar með þessum orðum? Nú hefur styrktarkerfi af þessu tagi (Forseti hringir.) verið viðhaft um árabil ef ekki áratugaskeið, sums staðar á hinum Norðurlöndunum og í Evrópu. (Forseti hringir.) Ég verð bara að biðja hv. þingmann um að útskýra þessa setningu, að það stangist á við aðhaldshlutverk fjölmiðla að vera með styrktarfyrirkomulag.

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)