fjölmiðlar.
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir andsvarið. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns varðandi fjölda blaðamanna og þá þróun sem hefur átt sér stað síðastliðin ár. Varðandi þessa setningu í nefndarálitinu sem hann nefndi þá var umræða um þetta í nefndinni. Við fengum fjölda gesta fyrir nefndina og það kom skýrt fram í umsögnum margra aðila sem komu fyrir nefndina að þó að beinir styrkir væru góðir og það væru afskaplega margar tillögur til staðar þá væri þetta kannski ekki það hentugasta fyrir alla. Þar af leiðandi þyrfti að skoða ýmsar tillögur. Ég vil bara nefna það að starfshópurinn sem kannaði bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla kom með átta tillögur og við teljum að það væri mjög gott að það yrði skoðað vel hvaða áhrif þessar tillögur myndu hafa á alla fjölmiðla. Þetta er mál sem væri gott að taka fyrir þegar fjölmiðlastefnan verður tekin fyrir hér á þingi.