fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Hér er tekið mjög afdráttarlaust til orða, með leyfi forseta:
„Til frambúðar er mikilvægt að horfið verði frá beinum styrkveitingum ríkisins til fjölmiðla enda stangast það á við eitt af meginhlutverkum fjölmiðla sem er að veita stjórnvöldum aðhald.“
Telja hv. þingmenn í meiri hluta nefndarinnar að fjölmiðlar sem hljóta styrki t.d. á hinum Norðurlöndunum, geti ekki veitt stjórnvöldum aðhald? Hvaða endemis vitleysa er þetta? Og að skattstyrkir séu einhvern veginn ópólitískir styrkir sem dragi hins vegar ekki úr aðhaldshlutverkinu? Ég ætla að biðja hv. þingmann um að útskýra fyrir okkur hér í þinginu hvað í ósköpunum átt er við. Ef styrktarkerfi er til þess fallið að draga úr aðhaldi fjölmiðla gagnvart stjórnvöldum, hvernig stendur þá á því að það var einmitt lagt til í þeirri skýrslu starfshóps sem hv. þingmaður nefndi hér áðan að komið yrði upp slíku styrktarkerfi? Það er ekki nema ár síðan að hæstv. menningarráðherra hér úr Framsóknarflokknum talaði af ástríðu hér á Alþingi fyrir slíku styrktarkerfi, (Forseti hringir.) talaði fyrir því að farin yrði sams konar leið og í Danmörku þar sem slíkt styrktarkerfi hefur verið við lýði lengi. (Forseti hringir.) Var þá hæstv. ráðherra að beita sér gegn því að fjölmiðlar veittu stjórnvöldum aðhald? (Forseti hringir.) Ég er bara svo hissa á þessum sjónarmiðum. Hvaðan koma þessar hugmyndir? Ég hef ekki séð þessar hugmyndir í umsögnum og jafnvel þótt þær væri þar að finna þá er þetta bara vitleysa. Það þarf að útskýra þetta.