fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég þakka ágæta framsögu. Ég ætla að byrja á að segja að það slær mig svolítið hvað þetta er gamaldags texti í nefndarálitinu, ef hægt er að tala um nokkurra ára gamlar tilvísanir sem gamaldags. Það sem ég meina er að við erum enn þá, sex árum eftir að þessi ríkisstjórn kom til valda og ætlaði að laga fjölmiðlana, að vísa í öra tækniþróun á fjölmiðlamarkaði og hrun prentmiðla og auglýsingamarkað RÚV, vísa í það eins og þetta séu staðreyndir sem hafi komið fram við vinnu þessarar nefndar undanfarnar vikur. Það olli mér vonbrigðum. Í ljósi þess að það sem kemur fram núna er framlenging á styrktarákvæði og svo er vísað í, rétt eins og í fyrra og árið þar áður og árið þar áður, í komandi skjal — forseti, ég er ekki búin með tvær mínútur.
(Forseti (JSkúl): Það er ein mínúta. )
Tvær mínútur í fyrra og ein mínúta í seinni.
(Forseti (JSkúl): Ekki þegar það eru fjórir. )
Nú sló forseti mig út af laginu. Er það svo að þetta hafi verið það sem kom fram meðal gesta, að það sé ekki hægt að fara í neinar breytingar fyrr en að einhverjum tíma liðnum, tveim árum, af því að enn þurfi að safna upplýsingum? (Forseti hringir.) Mér finnst það áhugavert og óska eftir svörum um það. Er það raunverulega þannig, að gestir sem komu fyrir nefndina lögðu það á borð (Forseti hringir.) og þið takið með ykkur að það þurfi enn að safna frekari gögnum og vinna málið betur?
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er ein mínúta þegar andsvör eru fjögur og biðst afsökunar á því að klukkan var í rugli í fyrsta andsvari hér í fyrri lotu. En ræðutíminn er ein mínúta. )