Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[19:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir andsvarið. Fyrir nefndinni komu fram ótrúlega mörg ólík sjónarmið og það var nú bara þannig að gestir voru oft ekki sammála. Byggðist það að vissu leyti á því að okkur skortir gögn í ýmsum málum. Það er nú verið að vinna að því að miklu leyti í tengslum við fjölmiðlastefnuna og það er ekki orðið opinbert. Það er m.a. það sem verið er að skoða, þ.e. það sem þeir tveir starfshópar sem eru að störfum núna eru að taka fyrir. Þeir eru að taka fyrir nútímaleg mál eins og skattlagningu á streymisveitur. Ég hef mjög gaman af því að það hefur verið talað um að þetta sé gamaldags, það er ekki oft sagt í tengslum við mig. En þetta nú er samt bara staðan, að við erum ekki með nægilega mikið af gögnum í dag. Það var t.d. talað um auglýsingarnar, hvernig dreifingin á þeim verði núna fyrst Fréttablaðið varð gjaldþrota. Það eru ekki til upplýsingar um auglýsingamarkaðinn hér í heild.