Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2023.

fjölmiðlar.

543. mál
[19:16]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er áhugavert í ljósi þess að fyrir ári síðan þegar þingmaður Viðreisnar, Sigmar Guðmundsson, lagði fram tillögu um heildarendurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla sagði ráðherra fjölmiðlamála, Lilja Alfreðsdóttir: Það þarf ekki að safna fleiri upplýsingum, þetta liggur allt fyrir, nú kemur stefnan. Það er ágætt að átta sig á því að það var misskilningur. Þá langar mig rétt núna til að nýta tímann — og ég sé að ég á heilar 37 sekúndur eftir, ég er með augun mjög stíft á þessu — og mér þætti vænt um útskýringu á því hverju það breytir í hinu stóra samhengi hlutanna þegar kemur að auglýsingamarkaði að leggja auglýsingadeild RÚV niður en halda áfram á óbreyttri braut varðandi sölu auglýsinganna sjálfra. Hvað í ósköpunum er átt við hér að það þurfi fyrst ítarlega rannsókn og greiningu á fjölmiðla- og auglýsingamarkaði í heild til að hafa skoðun á því hvernig og hvort RÚV á að vera á auglýsingamarkaði en vera grjóthörð í því að það eigi að leggja auglýsingadeildina niður? Ég vona að mínúta dugi.