fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég er með tvær spurningar. Önnur er svona: Hvers vegna að fresta því sem hægt er að gera strax? Hvers vegna er ekki bara byrjað á því að taka RÚV af auglýsingamarkaði? Mér finnst það blasa við. Gíra RÚV niður. Mér finnst það bara vera augljóst mál miðað við stöðuna sem uppi er í staðinn fyrir að fara í enn frekari skattheimtu. Síðan er það hinn þátturinn sem væri fróðlegt að fá að heyra afstöðu þingmannsins til, en það er útvarpsgjaldið sem er nefskattur. Það er í eðli sínu mjög ósanngjarnt, það leggst jafn þungt á einyrkjann og stórfyrirtæki. Allt í kringum þetta er nú þannig að mér finnst að það þurfi bara rækilega endurskoðun, gíra RÚV niður, minnka hér skattþörf ríkisins og fá eðlilegri lögmál á þennan markað. Það að vera að rukka Eflingarkonuna og auðmenn landsins um jafn hátt gjald er stórundarlegt.