fjölmiðlar.
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir andsvarið. Eins og ég nefndi hér áðan þá kemur Ríkisútvarpið í rauninni í þessu máli ekki við og við erum þar af leiðandi ekki að fara að leggja fram tillögur um að taka RÚV alfarið af auglýsingamarkaði í þessu mál þar sem það er mun stærri ákvörðun en það sem við erum að nefna hér. Það er starfshópur að skoða stöðu Ríkisútvarpsins og það er mjög mikilvægt. Hópurinn er að fara að skila sinni niðurstöðu núna 1. júlí og ég býst við því að þær niðurstöður sem koma frá þeim starfshópi verði teknar fyrir í fjölmiðlastefnunni og þá eru þetta bara mjög stórar pælingar sem verða teknar fyrir hér í haust.