fjölmiðlar.
Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir andsvarið öðru sinni. Við erum hér að tala um frumvarp sem varðar stuðning til einkarekinna fjölmiðla. Þetta er mjög áhugaverð umræða og þetta er bara umræða sem gæti tekið marga klukkutíma varðandi ráðstöfun útvarpsgjalds og á hverja það leggst og hvort það sé að skila sér á þann hátt sem við viljum að það skili sér. En það kemur þessu frumvarpi ekki við en myndi gera það í haust varðandi fjölmiðlastefnuna og þetta er bara umræða sem ég legg til að við tökum þá.