153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

ívilnun til uppbyggingar húsnæðis.

[13:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég verð nú fyrst að bregðast við þessum stóru orðum um að ríkisstjórnin hafi skilaði í raun og veru bara auðu í þeim aðstæðum sem eru uppi og rifja það upp að núna um áramótin hækkuðum við bætur almannatrygginga um 9% ofan á 7,4% hækkun í fyrra, við hækkuðum frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega um áramótin um helming, upp í 200.000 kr., húsaleigubætur voru hækkaðir um fjórðung frá miðju síðasta ári og tekjumörkin hækkuð, eignamörk voru hækkuð í vaxtabótakerfinu um 50%. Barnabótakerfinu var breytt og fært yfir í samtímagreiðslur og greiðslur hækkaðar, fleiri njóta bóta. Persónuafsláttur hækkaði um 10,7% um áramótin. Þetta var að gerast núna í janúar á þessu ári. Þar fyrir utan já, þá lögðum við fram fjármálaáætlun þar sem við aukum aðhaldið og bætum afkomuna. Við boðum frekari aðhaldsaðgerðir í opinbera rekstrinum, setjum aukið aðhald á Stjórnarráðið og ætlum áfram að vinna að bata í ríkisfjármálunum þannig að þau haldi áfram að styðja við markmið um lækkandi verðbólgu. Þannig að það er alrangt þegar sagt er að það sé ekki neitt í gangi.

Ein aðgerðin sem við höfum lagt til við þingið er að draga úr endurgreiðslum vegna nýbygginga og viðhalds á íbúðarhúsnæði og það er aðgerð sem m.a. tengist því að eins og hlutirnir stóðu núna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs þá var mjög mikill kraftur í uppbyggingu nýrra íbúða og framlegðin af byggingu íbúðarhúsnæðis hefur verið mjög há. Hvort það kemur til greina að undanskilja þennan hluta íbúðamarkaðarins — ég er alveg til í að hugsa það og það getur vel verið að það geti gagnast fyrir þennan hluta. En það er fleira sem myndi gagnast fyrir þennan hlut, t.d. ef Reykjavíkurborg myndi skila lóðum til þess að það væri hægt að byggja slíkar íbúðir. Síðast í dag þá sjáum við fréttir af því að Reykjavíkurborg er ekki að greiða fyrir hugmyndum um að stórauka framboðið af ódýru húsnæði í borginni, á höfuðborgarsvæðinu. (Forseti hringir.) Þvert á móti hefur Samfylkingin í Reykjavík fyrst og fremst verið að beita sér fyrir þéttingarstefnu sem er allt annað heldur en að tryggja mikið framboð á ódýru húsnæði.