153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

ívilnun til uppbyggingar húsnæðis.

[13:37]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Hæstv. ríkisstjórn er sem sagt að virða 69. gr. laga um almannatryggingar um að verðbæta örorkubætur. Hún setti ekki á neina leigubremsu þannig að húsnæðisbæturnar sem voru hækkaðar leka út í leiguverð. Barnabætur, eftir þær breytingar sem voru gerðar hjá ríkisstjórninni, eru enn þá í algjöru lágmarki miðað við landsframleiðslu sögulega séð og á Norðurlöndunum. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að það var ákveðið skref stigið en það er augljóslega ekki nóg að gert. Ég fagna því hins vegar að hæstv. fjármálaráðherra taki vel í hugmynd okkar Samfylkingarinnar um að undanskilja almenna íbúðakerfið frá þessari lækkun. Mig langar að nýta tækifærið til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort það komi til greina að bæta við fjárveitingu almennt inn í uppbyggingu og stofnframlög í almenna íbúðakerfinu, eins og stendur núna í fjármálaáætlun, í ljósi þess að rammasamningurinn, til að mynda við Reykjavíkurborg sem er eina sveitarfélagið sem hefur klárað slíkan rammasamning, gerir ráð fyrir miklu meiri fjármögnun. Mér ber skylda til að nefna í því samhengi, hæstv. forseti, að Reykjavíkurborg hefur verið í forystu þegar kemur að uppbyggingu almenna íbúðakerfisins. (Forseti hringir.) Fjórar af hverjum fimm íbúðum sem hafa verið byggðar hér á landi hafi átt sér stað í uppbyggingu í Reykjavík.