153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

ívilnun til uppbyggingar húsnæðis.

[13:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Vandinn varðandi almennu íbúðirnar er ekki sá að það hafi ekki verið tryggð fjármögnun frá ríkinu. Það hefur skort lóðir fyrir húsnæðið. Það hefur þess vegna verið meira á ábyrgð sveitarfélaganna að ganga í takt við þær áherslur sem ríkisstjórnin hefur verið að setja á oddinn. Ég verð aðeins að bregðast við því sem sagt er hér um barnabótakerfið, að það sé ófullnægjandi. En nýlegar úttektir á þessu, t.d. skýrsla frá Axel Hall sem kom út þegar við breyttum tekjuskattskerfinu á sínum tíma sýndi það mjög skýrt að stuðningur á Íslandi við fjölskyldur, við barnafólk, er einna bestur, ef við myndum bera okkur saman við Norðurlöndin, í öllu samhengi. Þar munar kannski hvað mestu um leikskólann en reyndar eru leikskólamálin í ólestri hér í höfuðborginni.

Það er spurning hversu langt við eigum að ganga með því að fjármagna uppbyggingu nýrra íbúða í gegnum Húsnæðissjóð, hafandi í huga að þegar við gerðum grundvallarbreytingar á Íbúðalánasjóði á sínum tíma (Forseti hringir.) vorum við að beina honum fyrst og fremst inn í félagsleg húsnæðisúrræði. Ég er sammála því að við þurfum að tryggja að nægilegt fjármagn verði til staðar. (Forseti hringir.) En við getum ekki verið með opinn reikning þannig að í hvert sinn sem félögin geta ekki fundið ásættanlega fjármögnun úti á markaðnum þá eigi ríkissjóður alltaf að koma og veita bestu kjör.