153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

vernd grænna svæða.

[13:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hér verða mikil tíðindi. Ég er kominn hér upp í óundirbúnum fyrirspurnatíma til að hrósa ráðherra og ekki bara hvaða ráðherra sem er heldur hæstv. umhverfisráðherra. Því að í fréttum Stöðvar 2 sagði hæstv. ráðherra frá því að hann vildi reyna að stöðva áform um byggingu nýs hverfis á grænu svæði við flugvöllinn í Reykjavík, hverfis sem skipulagt er af borginni og að einhverju marki innanríkisráðuneytinu með það eitt að markmiði að þrengja enn að flugvellinum og fækka grænum svæðum. Þessi langtímamarkmið borgarinnar fara saman í þessu tilviki, að fækka grænum svæðum og reyna að þoka flugvellinum í burt. Hæstv. ráðherra hitti fulltrúa íbúasamtaka sem kalla sig Prýðisfélagið Skjöld og tók vel í málaleitan þess félags um að komið yrði í veg fyrir þessi áform, sem illu heilli hafa haldið áfram, sérstaklega eftir að innanríkisráðuneytið var platað eina ferðina enn af borgaryfirvöldum, borgarstjóranum ekki hvað síst, til að fallast á framkvæmdir og fækka þar enn eina ferðina grænum svæðum í Reykjavík. En eins og hæstv. ráðherra hefur bent á er það orðið mjög sérstakt í alþjóðlegum samanburði hversu mikla áherslu Reykjavík leggur á að fækka slíkum svæðum. Ég spyr þó hæstv. ráðherra: Er honum alvara? Og ég spyr ekki að ástæðulausu. Við höfum séð það ítrekað að orð eru ódýr hjá ráðherrum þessarar ríkisstjórnar. Þegar innviðaráðherrann samþykkti það að hafist yrði handa við að grafa undan flugvellinum þá lýsti hann á sama tíma yfir eindregnum stuðningi við flugvöllinn, þannig að það er ekki alltaf að marka það sem kemur frá þessari ríkisstjórn. En er hæstv. umhverfisráðherra alvara í þessu tilviki?