vernd grænna svæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu máli. Spurningin er nú kannski ekki mjög skýr en ég hef ekki fengið mikla gagnrýni fyrir það fram til þessa að vera ekki alvara með þeim orðum sem ég segi. Í þessu tilfelli erum við bara að tala um mjög alvarlega hluti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þó að mér finnist það nú færa ábyrgðina nokkuð yfir á innviðaráðherra í stað þess að setja hana þar sem hún á að vera, sem er hjá meiri hlutanum í Reykjavík, þar er ábyrgðin, og tala þá um ákveðna hluti sem eru gagnrýndir. Það sem ég var að draga athygli að er þetta: Það er verið að ganga mjög á grænu svæðin í Reykjavík. Nú er ég búinn að taka á móti fólki hér í Reykjavík í áratugi og ég hef aldrei heyrt neinn mann segja, aldrei: Þið verðið að fækka grænum svæðunum, það er allt of mikið af grænum svæðum í Reykjavík.
Þetta hófst af fullri alvöru með Grænu byltingunni 1974 og allar borgir sem við berum okkur saman við, allar borgir, vernda grænu svæðin sín. Það er þannig að þegar þú ert búinn að taka grænt svæði frá þá eru, held ég, engin dæmi þess að menn ryðji byggð til þess að búa til græn svæði. Og í þessu tilfelli ertu að tala um lífríkið, ósnortna náttúru, fjöruborðið. Við eigum mjög lítið eftir af því í Reykjavík vegna þess að við höfum gengið allt of langt á það. Ef menn stíga þessi skref þá verður það aldrei aftur tekið. Formaður Fuglaverndarfélagsins sagði að þetta væri svipað með áform Reykjavíkurborgar og ævintýri H.C. Andersens þegar Kínakóngur drap næturgalann og lét smíða upptrekktan fugl í staðinn. Ég kalla eftir því að þeir þingmenn sem hér eru, sem eru í þeim flokkum sem bera ábyrgð á stjórn Reykjavíkurborgar, beiti sér í þessu máli því að hér er umhverfisslys á leiðinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)