vernd grænna svæða.
Frú forseti. Nú hlýt ég hafa áhyggjur af því að þetta kunni hugsanlega að vera bara einhver brella hjá hæstv. ráðherra til að koma höggi á meiri hlutann í Reykjavík og hann muni ekki framfylgja því sem hann hefur lofað Prýðisfélaginu Skildi og sagt frá í fréttum. Það jók á áhyggjur mínar hérna rétt fyrir fyrirspurnirnar þegar ég sá frétt í Morgunblaðinu þar sem hæstv. ráðherra benti á að þetta væri í rauninni ekkert í hans höndum en hann væri svona að vona að meiri hlutinn í Reykjavík myndi leysa þetta. En þetta er í hans höndum og þetta var í höndum innviðaráðherra sem eina ferðina enn aðstoðaði borgina við að framkvæma það sem hæstv. umhverfisráðherra kemur hér og gagnrýnir, enda hefur þessi ríkisstjórn verið mjög liðleg við meiri hlutann í Reykjavík og borgarstjórann, til að mynda tekið að sér að fjármagna helsta kosningaloforð Samfylkingarinnar í Reykjavík, borgarlínuna. En mun hæstv. ráðherra beita sér í þessu máli? Jú, við erum sammála um að það sé mikilvægt að vernda græn svæði. En hvað ætlar hann að gera? Voru þessar yfirlýsingar hans (Forseti hringir.) gagnvart íbúasamtökunum bara til þess fallnar að varpa ábyrgðinni yfir á meiri hlutann í Reykjavík eða ætlar ráðherrann að beita sér?