153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

vernd grænna svæða.

[13:47]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst skrýtið að ég þurfi að útskýra hér fyrir fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra og hv. þingmanni hvar skipulagsvaldið er í þessum málum. (Gripið fram í.) Hvað er hv. þingmaður að segja? Er hv. þingmaður að segja að hann þekki ekki til stjórnskipunar landsins? Þetta er ekki á mínu borði, hefur aldrei verið á mínu borði. En hef ég beitt mér í þessu? Já, ég er að beita mér í þessu, annars væri hv. þingmaður ekki að spyrja mig. Hef ég vald til að breyta skipulagi í Reykjavík? Nei, það hef ég ekki, hv. þingmaður veit það mætavel, eða ég vona það. En ég hef ekki sagt mitt síðasta orð í þessu máli. Ég mun beita mér í þessu máli, líka þegar kemur að grænum svæðum í Reykjavíkurborg, (SDG: Hvernig?) sem er mitt kjördæmi, og ég hef líka skoðun á því bara sem Reykvíkingur og Íslendingur hvernig er gengið þarna fram. En ég get ekki farið út fyrir mitt valdsvið og ég vona að hv. þingmaður sé ekki að biðja mig um það.