153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:48]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. 74% lífeyrisþega, eða 49.000 einstaklingar, fengu ofgreitt og þurfa nú að endurgreiða samkvæmt því frá og með 1. september næstkomandi. Meðaltalið er 164.000 kr. eða nærri því 8 milljarðar kr. endurgreiðsla á einu ári. Þessir einstaklingar þurfa að ganga í gegnum svipugöng fjárhagslegs ofbeldis til að gæta réttar síns að fullu. Það er vegna þess að þrátt fyrir að Tryggingastofnun krefjist endurgreiðslu þarf fólk sjálft að kæra eigið skattframtal og krefjast leiðréttingar ef á þarf að halda, enda þurfa þeir nú að skila til baka tekjum sem þeir hafa þegar greitt skatt af og það hefur verið notað til að skerða ýmsa bótaflokka, sem er alveg stórfurðulegt og ömurlegt fyrir þá sem lenda í því vegna þess að þeir ná aldrei nema brotabroti af þessu til baka ef þeir ná þá einhverju. Þetta er þrautaganga. En á sama tíma erum við með bótaflokka og skerðingar eins og sérstöku uppbótina sem skerðist 65% á móti krónu. Tekjur við frítekjumörk, það eru 45%. Tekjuskerðing 38,35%. Ellilífeyririnn skerðist um 45% af öllum tekjum eftir frítekjumörk. Síðan koma inn 10% búsetuskerðing, skerðingar á barnabótum, vaxtabótum, sérstökum húsaleigubótum yfir í félagsbótakerfið og síðan var samið um laun á vinnumarkaði á bilinu 30.000–66.000 kr. á mánuði. En um síðustu áramót fengu elli- og örorkulífeyrisþegar að meðaltali um 20.000 kr. á mánuði í hækkun.

Ég spyr því hæstv. fjármálaráðherra. Hann er svo hrifinn af Tekjusögunni en tekjurnar þar inni eru frá 2021. Er í þeim tekjum tekið tillit til skerðinga, allra þessara skerðinga? Vegna þess að síðan 2021 til dagsins í dag eru skerðingarnar orðnar 21 milljarður kr. Berum það saman við það sem hefur verið lagt inn í þennan flokk. Getur hæstv. fjármálaráðherra upplýst okkur um það hve mikið skilaði sér af þeim hækkunum til þeirra sem á þurftu að halda?