153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

skerðingar í almannatryggingakerfinu.

[13:52]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Já, hann segir að þetta séu tekjur eftir skatta en þetta er frá 2021. Ef við höldum okkur við nútímann þá er allt önnur saga í gangi vegna þess að viðkomandi fólk getur lent í öllum skerðingarflokkunum og alveg yfir í félagsbótakerfið. Ætlar ráðherra virkilega að segja mér það að þeir sem lenda í öllum þessum skerðingarflokkum komi svona út? Vegna þess að mínir útreikningar sýna að þeir mega þakka fyrir að eiga 2 kr. af hverjum 10. Þá hefur ráðherra ríkisstjórnarinnar lýst því yfir í fjölmiðlum að bætur almannatrygginga verði hækkaðar um mitt ár. Þarf ekki að leggja fram frumvarp um slíka hækkun? Í fyrra barst frumvarp um sambærilegar aðgerðir til þingsins um miðjan maí. Nú er kominn júní og þinglok fyrirhuguð í næstu viku. Hvar er frumvarpið? Hvað er, að mati hæstv. ráðherra, viðeigandi verðbólguvörn fyrir þennan hóp? Og ég spyr líka: Ef menn ætla að sjá til þess að þetta verst setta fólk fái virkilegar hækkanir, stendur þá til að greiða því út eingreiðslu skatta- og skerðingarlaust?