skerðingar í almannatryggingakerfinu.
Virðulegi forseti. Við erum enn að miða við það að eftir að endanleg ákvörðun hefur verið tekin um þá hækkun sem kæmi þá til framkvæmda núna 1. júlí verði nauðsynlegar ákvarðanir teknar. Við erum ekki að tala um það að greiða út einhvers konar eingreiðslu sem hv. þingmaður hefur líklega verið að vísa til þegar hann spyr hvort greiðslan eigi að verða skatta- og skerðingarlaus. Við erum að tala um að hækka einfaldlega heildargreiðslurnar, grunninn í almannatryggingakerfinu, um þessa fjárhæð sem er umfram það sem lög kveða á um en þau gera ráð fyrir því að við gerum þetta að jafnaði um áramót. Að öðru leyti vil ég segja að ég er sammála þingmanninum um það hversu óheppilegt þetta fyrirkomulag er með endurreikninginn og endurgreiðslurnar. Ég myndi gjarnan vilja starfa með þingmönnum að því (Forseti hringir.) að finna fyrirkomulag sem kæmi í veg fyrir þetta eftiráuppgjör sem ég veit að kemur í bakið á mörgum tekjulágum.