153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

hvalveiðar Íslendinga.

[13:57]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi erindi eins og þetta sem hv. þingmaður vísar til sem berast ráðuneytinu þá hljótum við að vera sammála um það, ég og hv. þingmaður, að ráðherra fer ekki að kveða upp úr um það hér í þingsal hver niðurstaða verður í einhverju máli sem er í formlegum farvegi í ráðuneytinu. Ég held að við yrðum fljót að segja að það væru ekki vinnubrögð sem væru sæmandi. Þannig að það er bara í ákveðnu ferli eins og lög gera ráð fyrir og ég held að við viljum halda því þannig. Síðan varðandi sjávarauðlindina þá er það ekki í því ráðuneyti sem ég stýri, eins og hv. þingmaður veit mætavel, en það sem ég hef lagt áherslu á að sé lykilatriði, hvort sem það er á sjó eða landi, er að þegar á að nýta auðlindir þá eigi að gera það með sjálfbærum hætti og byggja á vísindalegri ráðgjöf. Það er það sem við höfum ávallt lagt áherslu á, Íslendingar, alls staðar, og að við ráðum þeim málum sjálf. Svo getum við tekist á um hvað sé rétt að gera o.s.frv. og hvað við viljum gera. En það er gríðarlega mikilvægt og bara heyrir beint undir lífsafkomu íslenskrar þjóðar að sjálfbærni sé ávallt höfð að leiðarljósi og sömuleiðis að við ráðum sjálf okkar málum, því að við gætum verið í þeirri stöðu, ef sumir flokkar ná fram sínum áherslum, að vera bara álitsgjafar og að þessar ákvarðanir væru teknar annars staðar. Það er af fullri alvöru sem ég minni á þetta hér, fullri alvöru. Svo treysti ég þeim sem fara með þessi mál í ríkisstjórninni ágætlega til að gera það.