153. löggjafarþing — 115. fundur,  1. júní 2023.

hvalveiðar Íslendinga.

[14:00]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Umhverfisráðherra hefur sem sagt enga skoðun á hvalveiðum Íslendinga, jafnvel minni skoðun á áhrifum þeirra á lífríki sjávar en hann hefur af lífríki Skerjafjarðar ef byggt verður þar. Þetta er áhugavert. Ég tek fyllilega undir að það er mikilvægt að við ráðum okkar málum sjálf eins og hver önnur fullvalda þjóð. Ég deili ekki áhyggjum ráðherrans af því að ef við værum innan Evrópusambandsins myndum við neyðast til að veiða hval. Ég velti því fyrir mér, vegna þess að þegar menn verða ráðþrota eru þetta alltaf síðustu rökin, að við ætlum að ráða þessu sjálf: Getur ráðherra ekki verið sammála mér um að það að fá að ráða hlutum sjálf felst í því að það er bæði hægt að segja já og nei? Þegar tekið er tillit til þess að enginn af þremur stoðum sjálfbærni styður hvalveiðar, ekki efnahagslega stoðin, ekki sú félagslega og ekki sú umhverfislega, (Forseti hringir.) þá er kannski ástæða til að líta til hagsmuna Íslendinga frekar en hagsmuna Hvals hf. og segja nei við hvalveiðum. En fyrst og fremst þætti mér í alvöru (Forseti hringir.) ágætt að fá skoðun ráðherrans á hvalveiðum.